Opnið gluggann Sölureikningar.

Þetta efni á við um Microsoft Dynamics C5 2016 og lausnir sem nota Simplified UX hluti.

Tilgreinir alla sölureikninga í fyrirtækinu sem ekki hafa verið bókaðir.

Búinn er til sölureikningur til að skrá samkomulag við viðskiptamann um að selja tilteknar vörur með tilteknum afhendingar- og greiðsluskilmálum.

Hægt er að semja við viðskiptamanninn með því að gera fyrst sölutilboð, sem hægt er að breyta í sölureikning þegar samkomulag hefur náðst um söluna. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að: Gera tilboð.

Þegar viðskiptamaðurinn hefur staðfest samninginn, til dæmis eftir tilboðsferl, er hægt að bóka sölureikning til að skrá afhendindingarskyldu vörunnar, eins og um var samið. Þegar sölureikningurinn er bókaður er reikningurinn prentaður út á skjali sem verður að senda viðskiptamanninum sem afrit samkomulagsins.

Í flestu viðskiptaumhverfi, uppfyllist nú samningurinn með afhendingu varanna. Viðskiptamaðurinn uppfyllir svo samkomulagið með því að greiða fyrir vöruna samkvæmt greiðsluskilmálunum, til dæmis innan 14 daga. Í viðskiptaumhverfi þar sem viðskiptamaðurinn verður að greiða áður en vörur eru afhentar, til dæmis í smásölu, verður að bíða eftir greiðslukvittun fyrir vörunum áður en þær eru afhentar. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að: Afstemma greiðslur handvirkt.

Tengdir verkhlutar

Eftirfarandi tafla sýnir verkefni sem tengjast glugganum Sölureikningar, með tenglum á efni sem lýsa þeim.

Til aðSjá

Stofna sölureikning til að skrá samkomulag við viðskiptamann um að selja vörur með tilteknum afhendingar- og greiðsluskilmálum.

Hvernig er reikningsfært

Stofna viðskiptamannaspjald fyrir alla viðskiptamenn sem selt er til.

Hvernig á að Skrá nýja viðskiptamenn

Stofna sölutilboð þar sem boðið er upp á vörur með umsemjanlegum skilmálum áður en tilboðinu er breytt í sölureikning.

Hvernig á að: Gera tilboð

Stofna innkaupareikning fyrir allar eða valdar línur á sölureikningi.

Hvernig á að kaupa vörur til endursölu

Önnur verk

Eftirfarandi tafla sýnir önnur verkefni sem hægt er að framkvæma með Microsoft Dynamics C5 2016 og lausnir sem nota Simplified UX hluti, með tenglum á efni sem lýsa þeim.

Til aðSjá

Stofna innkaupareikning til að skrá samkomulag við lánardrottinn um að kaupa vörur með tilteknum afhendingar- og greiðsluskilmálum.

Hvernig á að skrá kaup

Notið aðgerð á ógreiddum bókuðum sölureikningi til að stofna sjálfvirkt kreditreikningsferli og annaðhvort afturkalla sölureikninginn eða endurskapa hann til að gera leiðréttingar.

Ógreiddir sölureikningar leiðréttir eða afturkallaðir

Stofna sölukreditreikning til þess að bakfæra tiltekinn bókaðan sölureikning til að endurspegla hvaða vörur viðskiptamaðurinn skilar og hvað upphæð þarf að endurgreiða.

Meðhöndlun söluvöruskila eða afturkallana

Notið aðgerð á ógreiddum bókuðum innkaupareikningi til að stofna sjálfvirkt kreditreikningsferli og annaðhvort afturkalla innkaupareikninginn eða endurskapa hann til að gera leiðréttingar.

Leiðrétta eða afturkalla ógreidda innkaupareikninga

Stofna innkaupakreiditreikning til þess að bakfæra tiltekinn bókaðan innkaupareikning til að endurspegla hvaða vörum er skilað til lánardrottins og hvað greiðsluupphæð fæst.

Meðhöndlun innkaupaskila eða afturkallana

Stofna lánardrottnaspjald fyrir alla lánardrottna keypt er af.

Hvernig á að Skrá nýja lánardrottna

Stofna birgðaspjald fyrir hverja birgðavöru eða þjónustu sem boðið er upp á.

Hvernig á að Skrá nýjar vörur

Auka eða minnka magn vöru í birgðum, til dæmis eftir raunbirgðatalningu eða sem einfalda leið til að skrá innkaupakvittanir.

Hvernig á að: Leiðrétta birgðir

Ábending

Sjá einnig