Þetta efni á við um Microsoft Dynamics C5 2016 og lausnir sem nota Simplified UX hluti.

Ef skila á vörum til lánardrottins eða afturkalla þjónustu sem hefur verið keypt, er hægt að búa til og bóka kreditreikning sem tilgreinir breytingarnar sem óskað er eftir vegna hins upphaflega innkaupareiknings. Aðgerðin Afrita fylgiskjal er notuð til að fylla út innkaupakreditreikninginn með réttum innkaupareikningsupplýsingum.

Venjulega, getur þú búið til innkaupakreditreikning sem svar við kreditreikningur sem lánardrottinn sendir þér, Innkaupakreditreikningurinn virkar eins og innra fylgiskjal fyrir bókahaldið um kreditreikningsferlið.

Breytingin gæti tengst öllum vörunum á hinum upphaflega innkaupareikningi eða aðeins sumum varanna. Hægt er að skila mótteknum vörum að hluta, eða fara fram á endurgreiðslu að hluta af móttekinni þjónustu. Í því tilviki, verður að breyta hinum afrituðu innkaupareikningsupplýsingum.

Hægt er að jafna innkaupakreditreikninginn við einn eða fleiri bókaða innkaupareikninga. Þetta bakfærir fjárhagsfærslurnar sem verða fyrir áhrifum breytingarinnar og gerir kleift innheimtu endurgreiðslu frá lánardrottninum. Ef jafna á innkaupakreditreikninginn við tiltekinn bókaðan innkaupareikning, sjá skref 4. Ef jafna á innkaupakreditreikninginn við marga bókaða innkaupareikninga, fylgið skrefum 14 til 18.

Til athugunar
Ef bókaður innkaupareikningur hefur ekki verið greiddur er hægt að nota aðgerðirnar Leiðrétta eða Afturkalla á bókuðu innkaupareikningnum til að afturkalla umræddar færslur. Þessir eiginleikar virka aðeins fyrir ógreidda reikninga og styðja ekki vöruskil að hluta eða afturkallanir. Frekari upplýsingar eru í Leiðrétta eða afturkalla ógreidda innkaupareikninga.

Innkaupakreditreikningur búinn til.

  1. Í reitinn Leita skal færa inn Innkaupakreditreikningar og velja síðan viðkomandi tengi.

  2. Á flipanum Heim í flokknum Stjórna veljið Nýtt.

  3. Í reitnum Nafn lánardrottins er fært inn nafn núverandi lánardrottins. Þessi reitur leitar samhliða því að ritað er í hann. Nafn er sjálfgefin afmörkun.

    Til athugunar
    Til að finna og færa inn lánardrottna eftir númeri eða símanúmeri, er auðvelt að breyta sjálfgefnum afmörkunum. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að færa inn gögn.

    Aðrir reitir á innkaupakreditreikningshausnum eru nú fylltir út með stöðluðum upplýsingum um viðskiptamanninn sem valinn hefur verið. Hægt er að breyta öllum reitum, svo sem reitunum í flokknum Greiðsluupplýsingar til að uppfylla kreditreikningssamninginn.

  4. Til að jafna innkaupakreditreikninginn við einn bókaðan innkaupareikning, fyllið í reitina í flokknum Upplýsingar umsóknar eins og er lýst í eftirfarandi töflu.

    Reitur Lýsing

    Tegund jöfnunar

    Tilgreinið fylgiskjalsgerðina sem innkaupakreditreikningurinn er jafnaður við.

    Jöfnunarnúmer

    Tilgreinið innkaupafylgiskjalið sem innkaupakreditreikningurinn er jafnaður við.

    Kenni jöfnunar

    Tilgreinið hvort innkaupakreditreikninginn eigi að jafna við einn eða fleiri bókaðan innkaupareikning með því að nota möguleikann Jafna færslur. Frekari upplýsingar er að finna í 14 skrefi.

    Þegar innkaupakreditreikningurinn er bókaður, verður hann jafnaður við tilgreinda bókaða innkaupareikninginn.

  5. Á flipanum Heim í flokknum Nýtt skal velja Afrita fylgiskjal.

  6. Í glugganum Afrita innkaupaskjal í Gerð fylgiskjals velurðu B‘okaður reikningur.

  7. Velja reitinn Númer fylgiskjals til að opna gluggann Bókaðir innkaupareikningar og síðan bókaða innkaupareikninginn sem á að bakfæra.

  8. Veljið gátreitinn Taka haus með ef yfirskrifa á núverandi haus innkaupakreditreikningsins með upplýsingum úr haus bókaða innkaupareikningsins sem valinn er.

    Til athugunar
    Ekki verður skrifað yfir upplýsingar sem skilgreindar voru í flokknum Upplýsingar umsóknar.

  9. Veljið gátreitinn Endurreikna línur, ef bókaða innkaupakreditreikningslínan sem var afrituð á að uppfærast með breytingum á vöruverði og kostnaðarverði síðan reikningurinn var bókaður.

  10. Velja hnappinn Í lagi. Afrituðu reikningslínurnar eru settar inn í innkaupakreditreikninginn.

    Ef öllu magni reikningsins er skilað eða afturkallað gegn endurgreiðslu að fullu, farið í skref 19 til að bóka innkaupakreditreikninginn.

    Í öðrum aðstæðum, til dæmis vöruskil að hluta með endurgreiðslu, eða ef fleiri vörum er skilað, fyllið út eða breytið sölukreditreikningslínunum handvirkt.

  11. Í flýtiflipanum Línur í reitnum Nr. er sleginn inn fjöldi birgðavöru eða þjónustu. Þessi reitur leitar samhliða því að ritað er í hann. Nr. er sjálfgefin afmörkun.

    Til athugunar
    Til að finna og færa inn viðskiptamenn eftir nafni, er auðvelt að breyta sjálfgefnum afmörkunum. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að færa inn gögn.

  12. Í reitnum Magn er fjöldi vara sem á að bakfæra færður inn.

    Til athugunar
    Fyrir vörur af tegundinni Þjónusta er magnið tímaeining, t.d. klukkutímar, eins og gefið er til kynna í reitnum Mælieiningarkóti í línunni

    Reiturinn Línuupphæð uppfærist til að sýna að gildið í reitnum Innk.verð margfaldast með gildinu í reitnum Magn.

    Verð- og línuupphæðirnar eru sýndar með eða án VSK, en það fer eftir því hvað var valið í reitnum Verð með VSK á lánardrottinsspjaldinu.

  13. Endurtakið þrep 11 til 12 fyrir hverja birgðavöru eða þjónustu sem á að afturkalla.

    Heildarstærðirnar sem eru sýndar neðst á innkaupakreditreikningnum reiknast sjálfvirkt eftir því sem línunum er breytt eða nýjar línur eru búnar til. Þannig er hægt að staðfesta að kreditreikningurinn sem er verið að stofna passi við þann sem barst frá lánardrottni.

  14. Til að jafna innkaupakreditreikninginn við marga bókaða innkaupareikninga, á flipanum Heim í flokknum Meðhöndla skal velja Jafna færslur.

  15. Í glugganum Jafna lánardr.færslur eru valdar línurnar með færslunum sem á að jafna færsluna við.

  16. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Jöfnun, skal velja Setja kenni jöfnunar. Númer innkaupakreditreikningsins er sett í völdu línurnar.

  17. Í hverri línu í reitnum Upphæð til jöfnunar er rituð upphæðin sem jafna á við einstaka færslu. Ef engin færsla er rituð jafnar forritið sjálfkrafa við hámarksupphæðina. Neðst í glugganum Jafna lánardr.færslur má sjá upphæðina í reitnum Jöfnuð upphæð og einnig hvort jöfnunin stemmir.

  18. Velja hnappinn Í lagi til að loka glugganum Jafna lánardr.færslur. Þegar innkaupakreditreikningurinn er bókaður, verður hann jafnaður við tilgreinda bókaða innkuapareikningana.

    Þegar stofnaðar hafa verið línur fyrir innkaupakreditreikninga og ein eða fleiri jöfnun tilgreind, er hægt að bóka innkaupakreditreikninginn.

  19. Á flipanum Heim, í flokknum Bókun, skal velja Bóka.

Bókuðu innkaupareikningarnir sem jafnaðir eru við kreditreikninginn eru nú bakfærðir. Ef þegar upprunalegi reikningurinn hefur þegar verið greiddur ætti lánardrottinn nú að endurgreiða greiðsluna. Ef kreditreikningurinn er aðeins fyrir hluta afurðarinnar á upprunalega reikningnum geturðu aðeins greitt eftirstandandi upphæð á upprunalega innkaupareikningnum til að loka honum.

Innkaupakreditreikningurinn er fjarlægður og skipt út fyrir nýtt fylgiskjal á lista bókaðra innkaupakreditreikninga, sem er aðgengilegur úr Hlutverkamiðstöð.

Ábending

Sjá einnig