Opnið gluggann Upplýs. um þjónustupöntun.
Sýnir upplýsingar um viðeigandi þjónustupöntun. Þar er einfalt yfirlit yfir innihald allrar þjónustupöntunarinnar, upplýsingar um tilteknar þjónustulínur og upplýsingar sem tengjast reikningsfærslu, afhendingu og notkun, sem og stöðu viðskiptamanns.
Glugginn Upplýs. um þjónustupöntun er tvískiptur; haus og línur. Hausinn inniheldur fimm flýtiflipa: Almennt, Sundurliðað, Afhenda, Þjónustulína og Viðskiptamaður. Almennt, Sundurliðað, Afhenda, Þjónustulína og Viðskiptamaður. Þessir flýtiflipar birta upplýsingar eins og magn, upphæð, VSK, kostnað og hámarksskuld viðskiptamanns. Upphæðirnar í glugganum eru í sama gjaldmiðli og þjónustuskjalið, nema annað sé tilgreint. Uppröðun reita er nánast eins í öllum flýtiflipum nema hvað þeir innihalda mismunandi upplýsingar í hverjum flýtiflipa:
-
Flýtiflipinn Almennt sýnir upplýsingar um alla þjónustupöntunina. Kerfið notar gildin í reitnum Magn á öllum þjónustulínunum til að sækja upplýsingarnar.
-
Flýtiflipinn Sundurliðað birtir upplýsingar um vörur, forðastundir og/eða kostnað sem á að reikningsfæra og/eða nota. Kerfið notar reitina Magn til reikningsf. og Magn til notkunar á þjónustulínunum til að sækja viðeigandi upplýsingar. Upplýsingarnar á flýtiflipanum eru birtar í þremur dálkum; Reikningsfæra, Notkun og Samtals. Í dálkinum Samtals birtir kerfið heildarupphæðir í þjónustupöntunum eftir að hafa lagt saman reikningsfærðar upphæðir og notkunarupphæðir.
-
Flýtiflipinn Afhenda birtir upplýsingar um vörur, forða og/eða kostnað sem á að afhenda. Kerfið notar gildin í reitnum Magn til afhendingar á öllum þjónustulínunum til að sækja upplýsingarnar.
-
Flýtiflipinn Þjónustulína birtir upplýsingar um allar gerðir þjónustulína í viðeigandi þjónustupöntun. Af þeim sökum eru upphæðir fyrir vörur, forða, kostnað og fjárhagsreikninga sýndar aðskildar.
Í reitunum á flýtiflipunum Almennt, Afhenda, Sundurliðað og Þjónustulína eru eftirfarandi upplýsingar um viðkomandi magntölur og upphæðir:
Reitur | Lýsing |
---|---|
Upphæð án VSK eða Upphæð með VSK | Þessi reitur sýnir nettóupphæð allra línanna í þjónustupöntuninni. Þessi upphæð getur verið með eða án VSK, allt eftir gildinu í reitnum Verð með VSK í haus þjónustupöntunarinnar. Upphæðin er ekki með reikningsafslætti en inniheldur línuafslætti. |
Reikningsafsl.upphæð | Þessi reitur sýnir upphæð reikningsafsláttarins fyrir alla þjónustupöntunina. Ef gátmerki er í reitnum Reikna reikn.afsl. í glugganum Sölugrunnur hefur afslátturinn verið reiknaður sjálfkrafa. Annars er hann reiknaður þegar smellt er á Aðgerðir, bent á Aðgerðir og smellt á Reikna reikningsafsl. í glugganum Þjónustulínur. |
Alls utan VSK | Þessi reitur sýnir heildarupphæð að frátalinni reikningsafsláttarupphæð þjónustupöntunarinnar. Upphæðin telur ekki með VSK. |
% VSK eða VSK-upphæð | Þessi reitur sýnir heildarupphæð VSK sem hefur verið reiknuð fyrir allar línur í þjónustupöntuninni. |
Brúttóupphæð | Þessi reitur birtir brúttóupphæðina í þjónustupöntuninni, með VSK. Í reikningsfærsludálkinum á sundurliðunarflýtiflipanum inniheldur reiturinn upphæðina sem verður bókuð á reikning viðskiptamannsins fyrir allar línurnar í þjónustupöntuninni, ef pöntunin er bókuð sem reikningsfærð. |
Sala (SGM) | Þessi reitur sýnir upphæðina í reitnum Samtals að ofan eins og hún er yfirfærð í SGM. |
Upphaflegur kostnaður (SGM) | Þessi reitur sýnir heildarkostnað fjárhagsreikningsfærslna, kostnaðar, vara og/eða forða í sölupöntuninni í SGM. Kostnaðurinn er reiknaður með því að margfalda kostnaðarverð með magni viðeigandi vara eða forða. |
Leiðréttur kostnaður (SGM) | Þessi reitur birtir heildarkostnað vara í þjónustupöntuninni, í SGM, sem leiðréttur hefur verið samkvæmt breytingum í upphaflegum kostnaði þessara vara. Ef gildið í reitnum er jafnt núlli merkir það að engar gildisfærslur eru til staðar til að reikna, mögulega vegna gagnaþjöppunar eða vegna þess að leiðréttingarkeyrslan (Leiðr. kostnað - Birgðafærslur) hefur ekki verið keyrð. |
Upphæð kostnaðarleiðr. (SGM) | Þessi reitur birtir mismuninn á milli upphaflegs kostnaðar og leiðrétts heildarkostnaðar vara í þjónustupöntuninni. Núllgildi í reitnum merkir eitt af eftirfarandi: upphaflegur kostnaður og leiðréttur heildarkostnaður er jafn eða engar færslur eru til staðar til útreiknings, hugsanlega vegna gagnaþjöppunar. |
Upphafleg framlegð (SGM) | Þessi reitur birtir upphæð upphaflegrar framlegðar fyrir þjónustupöntun (í SGM), áður en vara er kostnaðarleiðrétt. Kerfið reiknar upphæðina sem mismun milli gilda í reitunum Upphæð án VSK (Upphæð með VSK) og Upphafleg framlegð (SGM). |
Leiðrétt framlegð (SGM) | Þessi reitur birtir upphæð framlegðar fyrir þjónustupöntun, í SGM, sem leiðrétt hefur verið vegna breytinga í upphaflegum kostnaði vöru. Kerfið reiknar upphæðina sem mismun milli gilda í reitunum Upphæð án VSK (Með VSK) og Leiðréttur kostnaður (SGM). Núll í þessum reitum merkir að engar færslur eru til staðar í útreikning, hugsanlega vegna gagnaþjöppunar. |
Upphafleg framlegðar% | Þessi reitur birtir framlegðarprósentu fyrir leiðréttingu á vörukostnaði í þjónustupöntuninni. |
Leiðrétt framlegðar% | Þessi reitur birtir upphæð leiðréttrar framlegðar í þjónustupöntun, gefin upp sem prósenta af upphæðinni í reitnum Upphæð án VSK (Upphæð með VSK). |
Magn | Þessi reitur sýnir magn allra fjárhagsreikningsfærslna, vara og/eða forða í þjónustupöntuninni. Ef sléttuð upphæð stafar af því að gátmerki er í reitnum Sléttun reiknings í töflunni Sölugrunnur er magn vara, forðastunda, kostnaðar og/eða fjárhagsreikningsfærslna í þjónustupöntuninni plús einn í reitnum Magn. |
Pakkningar | Þessi reitur sýnir magn pakkninga varanna sem tilgreindar eru í þjónustulínunum í pöntuninni. |
Nettóþyngd | Þessi reitur sýnir nettóþyngd varanna sem tilgreindar eru í þjónustulínunum í pöntuninni. |
Brúttóþyngd | Þessi reitur sýnir brúttóþyngd varanna í þjónustulínunum í pöntuninni. |
Rúmmál | Þessi reitur sýnir rúmmál varanna í þjónustulínunum í pöntuninni. |
Upphæðin í reitnum Brúttóupphæð er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Sléttunarnákvæmni reikninga í gjaldmiðilstöflunni fyrir viðeigandi gjaldmiðil. Gildin í reitunum Upphæð án VSK (með VSK), Kostnaður (ISK) og Framlegð (ISK) eru sléttuð samkvæmt innihaldi í reitnum Upph. sléttunarnákvæmni í gjaldmiðilstöflunni fyrir viðeigandi gjaldmiðil.
Reitirnir á flýtiflipanum Almennt sýna eftirfarandi upplýsingar:
Staða (SGM) | Þessi reitur sýnir stöðu á reikningi viðskiptamanns. |
Hámarksskuld (SGM) | Tveir reitir sýna upplýsingar um hámarksskuld viðskiptamanns. Fyrri reiturinn sýnir hámarksskuld viðskiptamannsins, sem þjónustupöntun var stofnuð fyrir, sem upphæð. Seinni reiturinn sýnir framvindustiku fyrir prósentu hámarksskuldar sem viðskiptamaður hefur notað. |
Línurnar í neðri hluta gluggans Upplýs. um þjónustupöntun birta sundurliðun VSK% fyrir upphæðirnar í hausnum.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um notkun notandaviðmótsins eru í Vinna með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |