Tilgreinir stærð bilsins sem nota á við sléttun upphæða í þessum gjaldmiðli. Hægt er að tilgreina reikningssléttun fyrir hvern gjaldmiðil í töflunni Gjaldmiðill.

Ef til dæmis er fært 0,25 í þennan reit sléttar kerfið allar reikningsupphæðir í þessum gjaldmiðli að tölu sem er deilanleg með 0,25.

Þegar reikningsupphæð er sléttuð býr kerfið til reikningslínu með sléttuðu upphæðinni. Skoða má sléttuðu reikningsupphæðina fyrir bókun í glugganum Söluupplýsingar.

Til að skilgreina sléttun reiknings fyrir breytilegan gjaldmiðil á að færa svona inn í reitina:

Sléttunarnákvæmni reikninga

Hér verður að tilgreina talnabilið sem notað er við sléttun reikningsupphæða:

Sléttunartegund reikninga

Hér þarf að tilgreina hvernig slétta á upphæðina, til dæmis upp eða niður.

Sléttun reiknings í töflunni Sölugrunnur eða í töflunni Innkaupagrunnur.

Hér verður að tilgreina hvort kerfið skuli nota reikningssléttun, eins og hún hefur verið skilgreind í ofannefndum tveimur reitum.

Reikningssléttunarreikningur í töflunum Bókunarflokkur viðskiptamanna og Bókunarflokkur lánardrottna.

Hér verður að tilgreina reikninginn sem sléttunarupphæðin verður bókuð á við viðskipti viðskiptamanns eða lánardrottins.

Ábending

Sjá einnig

Tilvísun

Gjaldmiðlar