Vegna þess að OCR byggist á sjónrænum stafakennslum getur OCR-þjónustan túlkað bókstafi í PDF-skjali eða myndaskrám á rangan hátt, til dæmis fyrst þegar hún vinnur úr skjölum frá tilteknum lánardrottni. Hún túlkar merki fyrirtækisins hugsanlega ekki sem nafn lánardrottins eða mistúlkar heildarupphæð á kostnaðarkvittun vegna þess hvernig hún er sett upp. Til að komast hjá því að slíkar villur berist áfram er hægt að leiðrétta gögn úr OCR-þjónustu og senda athugasemdirnar aftur til þjónustuaðilans.

Glugginn Gagnaleiðrétting stafakennsla, sem er opnaður úr glugga Skjal á innleið, birtir reiti úr flýtiflipanum Fjárhagsupplýsingar í tveimur dálkum, einum þar sem hægt er að breyta OCR-gögnum og öðrum þar sem OCR-gögnin eru skrifvarin. Þegar hnappurinn Senda OCR-athugasemdir er valinn er innihald gluggans Gagnaleiðrétting stafakennsla sent OCR-þjónustunni. Næst þegar þjónustuaðilinn vinnur úr PDF-skjali eða myndaskrá sem inniheldur umrædd gögn verða stuðst við leiðréttingar notanda til að komast hjá sömu villu.

Til að leiðrétta OCR villur og senda upplýsingar um leiðréttingar til OCR-þjónustu

  1. Í reitnum Leit skal færa inn Fylgiskjöl á innleið og velja síðan viðkomandi tengil.

  2. Opnaðu færslu fyrir skjal á innleið semn inniheldur gögn sem berast frá OCR þjónustu, sem þú vilt leiðrétta.

  3. Í glugganum Skjal á innleið, á flipanum Aðgerðir, í flokknum OCR, skal velja Leiðrétta ORC-gögn.

  4. Í glugganum Gagnaleiðrétting stafakennsla skal yfirskrifa gögnin í dálkinum sem hægt er að breyta fyrir hvern reit með rangt gildi.

  5. Til að afturkalla leiðréttingar sem gerðar eru eftir að glugginn Gagnaleiðrétting stafakennsla er opnaður, farið í flipannHeim og hópinnFerli veljið þarEndurstilla OCR-gögn.

  6. Til að senda leiðréttingar til OCR-þjónustu, á flipanum Heim, í flokknum Vinnsla er valið Senda OCR-athugasemdir.

  7. Til að vista leiðréttingarnar, veljið gluggann Gagnaleiðrétting stafakennsla.

    Reitirnir í flýtiflipanum Fjárhagsupplýsingar í glugganum Skjal á innleið eru uppfærðir með öllum nýjum gildum sem færð voru ínn í skrefi 4.

Ábending

Sjá einnig