Það gæti þurft að setja inn samnings- eða samningstilboðslínur til að skrá þjónustuvörur í þjónustusamning eða þjónustusamningstilboð sem þegar eru teknar með í öðrum þjónustusamningi eða samningstilboði.

Þjónustusamningslínur settar inn í þjónustusamning eða þjónustusamningstilboð:

  1. Í reitnum Leit skal færa inn Þjónustusamningur eða Þjónustsamningstilboðog velja síðan viðkomandi tengil.

  2. Opna skal viðeigandi þjónustusamning eða þjónustusamningstilboð sem bæta á línum við.

  3. Á flipanum Aðgerðir í flokknum Eiginleikar veljið Opna samning til að opna samninginn fyrir breytingar.

  4. Á flýtiflipanum Sundurl. reikningur skal velja gátreitinn Heimila ójafnaðar upphæðir ef breyta á árlegri upphæð og skipta mismun árlegrar upphæðar handvirkt í samningslínunum. Annars skal hreinsa gátreitinn í reitnum Heimila ójafnaðar upphæðir til að dreifa árlegum mismun sjálfkrafa á samningslínur eftir að ársupphæð hefur verið breytt.

  5. Á flipanum Aðgerðir í flokknum Eiginleikar veljið Velja samningslínur eða Velja samningstilboðslínur. Glugginn Samningslínuval birtist og þar sjást allar þjónustuvörur sem skráðar eru á viðskiptamanninn. Ef sendist-til - aðsetur er tilgreint í samningnum eða samningstilboðinu birtist það í þessum glugga.

  6. Velja skal þær þjónustuvörur sem eiga að vera með í þjónustusamningnum eða þjónustusamningstilboðinu og smella svo á Í lagi.

Skrefin eru endurtekin fyrir hverja þjónustuvöru sem á að taka með í þjónustusamningnum eða þjónustusamningstilboðinu.

Ábending

Sjá einnig