Hægt er að uppfæra tækifæri eigi til dæmis að breyta mati á líkum á árangri og áætluðu virði.
Hægt er að uppfæra tækifæri í glugganum Tækifæralisti. Í glugganum Tækifæralisti birtast tækifæri fyrir tengiliði, sölumenn eða söluherferðir eftir því hvar hann er opnaður. Aðferðin sem notuð er til að uppfæra tækifæri á Spjald sölumanns/innkaupaaðila er rakin hér að neðan.
Tækifæri uppfært
Í reitnum Leit skal færa inn Sölumenn og velja síðan viðkomandi tengil.
Veljið sölumanninn sem er ábyrgur fyrir tækifærinu.
Á flipanum Færsluleit, í flokknum Sölumaður, skal velja Tækifæri og síðan velja Listi.
Í glugganum Tækifæralisti á flipanum Aðgerðir í flokknum Aðgerðir veljið Uppfæra. Leiðsagnarforritið Uppfæra tækifæri opnast.
Í fyrsta glugganum í leiðsagnarforritinu er valkosturinn Uppfæra valinn og velja Áfram hnappinn.
Aðrir gluggar í leiðsagnarforritinu eru fylltir út til að tilgreina nýjar upplýsingar um tækifærið, eigi til dæmis að endurmeta áætlað virði tækifærisins.
Reitirnir Dagsetning, Áætlað virði (SGM), Líkur á árangri (%) og Áætluð lokunardagsetning eru skyldureitir og verða að vera fylltir út áður en hægt er að velja Áfram eða Ljúka.
Þegar lokið er við að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar er valinn hnappurinn Ljúka.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |