Opnið gluggann Reikningsupplýsingar þjónustu.
Tilgreinir tölfræðilegar upplýsingar um innihald bókaðs þjónustureiknings. Glugginn opnast úr glugganum Bókaðir þjónustureikningar, á valmyndinni Tengdar upplýsingar, þegar bent er á Reikningur og smellt á Upplýsingar.
Glugginn er tvískiptur; haus og línur. Hausinn er með tvo flýtiflipa: Almennt og Viðskiptamaður. Almennt, Sundurliðað, Afhenda, Þjónustulína og Viðskiptamaður. Þessir flýtiflipar sýna upplýsingar eins og magn, upphæð, VSK, kostnað, framlegð og hámarksskuld viðskiptamanns. Upphæðirnar í glugganum eru á sama gjaldmiðli og þjónustuskjalið, nema annað sé tilgreint.
Reitirnir á flýtiflipanum Almennt sýna eftirfarandi upplýsingar:
Reitur | Lýsing |
---|---|
Upphæð | Þessi reitur sýnir nettóupphæð allra lína á bókaða þjónustureikningnum. Þessi upphæð er ekki með VSK eða afslætti en felur í sér línuafslátt. |
Reikningsafsl.upphæð | Þessi reitur sýnir upphæð reikningsafsláttarins fyrir allan þjónustureikninginn. Ef gátmerki er í reitnum Reikna reikn.afsl. í glugganum Sölugrunnur hefur afslátturinn verið reiknaður sjálfkrafa. Annars er hann reiknaður þegar smellt er á Aðgerðir, bent á Aðgerðir og smellt á Reikna reikningsafsl. áður en reikningurinn er bókaður. |
Nettóupphæð | Þessi reitur sýnir nettóupphæð að frátalinni reikningsafsláttarupphæð bókaða þjónustureikningsins. Upphæðin telur ekki með VSK. |
% VSK eða VSK-upphæð | Þessi reitur sýnir heildarupphæð VSK á bókaða þjónustureikningnum. |
Brúttóupphæð | Þessi reitur sýnir heildarupphæð með VSK sem hefur verið bókuð sem reikningsfærð á reikning viðskiptamanns. |
Sala (SGM) | Þessi reitur sýnir töluna í reitnum Samtals að ofan eins og hún er yfirfærð í SGM. |
Upphaflegur kostnaður (SGM) | Þessi reitur sýnir heildarkostnað, í SGM, fjárhagsreikningsfærslna, kostnaðar, vara og/eða forða á bókuðum þjónustureikningi. Kostnaðurinn var reiknaður með því að margfalda kostnaðarverð (í SGM) með magni viðeigandi vara, forða og/eða kostnaðar í bókuðum reikningi. |
Leiðréttur kostnaður (SGM) | Þessi reitur birtir heildarkostnað vara í bókaða þjónustureikningnum, í SGM, sem leiðréttur hefur verið samkvæmt breytingum í upphaflegum kostnaði þessara vara. Ef gildið í reitnum er jafnt núlli merkir það að engar gildisfærslur eru til staðar til að reikna, mögulega vegna gagnaþjöppunar eða vegna þess að leiðréttingarkeyrslan (Leiðr. kostnað - Birgðafærslur) hefur ekki verið keyrð. |
Upphæð kostnaðarleiðr. (SGM) | Þessi reitur birtir mismuninn á milli upphaflega kostnaðarins og leiðrétts heildarkostnaðar vara í bókaða þjónustureikningnum. Núllgildi í reitnum merkir eitt af eftirfarandi: upphaflegur kostnaður og leiðréttur heildarkostnaður er jafn eða engar færslur eru til staðar til útreiknings, hugsanlega vegna gagnaþjöppunar. |
Upphafleg framlegð (SGM) | Þessi reitur birtir upphæð framlegðar fyrir þjónustureikning (í SGM), áður en vara er kostnaðarleiðrétt. Kerfið reiknar upphæðina sem mismun milli gilda í reitunum Upphæð og Upphafleg framlegð (SGM). |
Leiðrétt framlegð (SGM) | Þessi reitur birtir upphæð framlegðar fyrir þjónustureikning, í SGM, sem leiðrétt hefur verið vegna breytinga í upphaflegum kostnaði vöru. Kerfið reiknar upphæðina sem mismun á milli gilda í reitunum Upphæð og Leiðréttur kostnaður (SGM). Núll í þessum reitum merkir að engar færslur eru til staðar í útreikning, hugsanlega vegna gagnaþjöppunar. |
Upphafleg framlegðar% | Þessi reitur sýnir framlegðarupphæð fyrir reikningsfærða magnið, í prósentum, áður en vara er kostnaðarleiðrétt á þjónustupöntuninni. |
Leiðrétt framlegðar% | Þessi reitur birtir upphæð leiðréttrar framlegðar þjónustureikningsins, gefið upp sem prósenta af upphæðinni í reitnum Upphæð. |
Magn | Þessi reitur sýnir magn allra fjárhagsreikningsfærslna, vara og/eða forða í bókaða þjónustureikningnum. Ef sléttuð upphæð stafar af því að gátmerkið Sléttun reiknings í töflunni Sölugrunnur var valið er magn vara, forðastunda, kostnaðar og/eða fjárhagsreikningsfærslna í þjónustuskjalinu plús einn í reitnum Magn. |
Pakkningar | Þessi reitur sýnir heildarmagn reikningsfærðra pakkninga. |
Nettóþyngd | Þessi reitur sýnir heildarnettóþyngd reikningsfærðra vara. |
Brúttóþyngd | Þessi reitur sýnir heildarbrúttóþyngd reikningsfærðra vara. |
Rúmmál | Þessi reitur sýnir heildarrúmmál reikningsfærðra vara. |
Upphæðin í reitnum Brúttóupphæð er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Sléttunarnákvæmni reikninga í gjaldmiðilstöflunni fyrir viðeigandi gjaldmiðil. Gildin í reitunum Upphæð, Kostnaður (ISK) og Framlegð (ISK) eru sléttuð samkvæmt innihaldi í reitnum Upph. sléttunarnákvæmni í gjaldmiðilstöflunni.
Reitirnir á flýtiflipanum Almennt sýna eftirfarandi upplýsingar:
Staða (SGM) | Þessi reitur sýnir stöðu í SGM á reikningi viðskiptamanns. |
Hámarksskuld (SGM) | Tveir reitir sýna upplýsingar um hámarksskuld viðskiptamanns. Fyrri reiturinn sýnir hámarksskuld viðskiptamannsins í SGM sem þessi þjónustureikningur var stofnaður og bókaður fyrir. Seinni reiturinn sýnir framvindustiku fyrir prósentu hámarksskuldar sem viðskiptamaður hefur notað. |
Línurnar í neðri hluta gluggans Reikningsupplýsingar þjónustu birta sundurliðun VSK% fyrir upphæðirnar í bókaða þjónustureikningnum.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um notkun notandaviðmótsins eru í Vinna með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |