Opnið gluggann Flytja inn samstæðu úr skrá.
Flytur inn færslur úr fyrirtækiseiningunum sem eru í samstæðu ef fyrirtækiseiningarnar eru úr öðrum gagnagrunni en þeim sem inniheldur samstæðufyrirtækið. Áður en þetta er hægt þarf fyrst að flytja út færslur frá fyrirtækiseiningunum í skrá með keyrslunni Flytja út samstæðu. Einu fyrirtækiseiningarnar sem hægt er að flytja inn eru þær sem eru settar upp í töflunni Fyrirtækiseining og eru með reitinnSteypa saman valinn.
Fyrirtækiseiningar úr sama gagnasafni í Microsoft Dynamics NAV og samsteypufyrirtækið má flytja inn með keyrslunni Samstæða flutt inn frá GS.
Keyrslan vinnur úr öllum færslum í skránni og les þær inn í bókhald samsteypufyrirtækis. Þegar keyrsla er hafin gefa boð um stöðuna á skjánum til kynna þá fyrirtækjaeiningu, ásamt númeri og dagsetningu, sem unnið er úr.
Dagsetning nýrra færslna í samsteypufyrirtækinu verður annað hvort lokadagsetning tímabilsins eða nákvæm dagsetning ef sögulegt gengi er notað sem Samstæðu-umreikningsaðferð. Upphæðunum í nýjum færslum í samsteypufyrirtækinu er umbreytt úr upphæðum fyrirtækjaeiningarinnar í samræmi við upplýsingar um fyrirtækjaeininguna í eftirfarandi reitum:
- Samstæðu%, Tekjugengisstuðull og Staða gengisstuðuls á töflunni Fyrirtækiseining.
- Samstæðu-umreikningsaðferð á töflunni Fjárhagsreikningur fyrir hvern samstæðulykil.
Þegar stakir fjárhagsreikningar í fyrirtækiseiningunni eru tengdir við reikningsnúmer samstæðufyrirtækisins fyrir bæði Samstæðu-debetreikn. og Samstæðu-kreditreikn. flytur keyrslan debet- og kreditstöður frá fyrirtækiseiningum í reikningana í samstæðufyrirtækinu. Sé þegar um færslur að ræða vegna fyrirtækiseiningar í bókhaldi samsteypufyrirtækis er þeim breytt, um leið og eftirfarandi texti tengist þeim: Breytt við samstæðu á (vinnudagsetning).
Þegar Efnahagsreikningur lokagengis sem þegar hefur stöðu frá fyrra samstæðutímabili er fluttur inn kann að reynast nauðsynlegt leiðrétta upphafsstöðuna. Hvers kyns gengismismunur milli síðasta innflutnings og núverandi innflutnings er hægt að staðfesta með því að nota reitina Staða gengisstuðuls og Síðasta staða gengisstuðuls. Ef um gengismun er að ræða er upphafsjöfnuður á efnahagsreikningum leiðréttur í samræmi við það gengi sem á við á efnahagsreikningunum. Gengismunur er alltaf reiknaður og bókaður á reikninga fyrir gengishagnað og -tap sem settir eru upp í töflunni Fyrirtækiseining. Hugsanlegar eftirstöðvar eru reiknaðar fyrir allar innfluttar færslur og bókaðar á Reikning afgangs í samsteypufyrirtækinu.
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Skrársnið | Skráin sem nota á fyrir samsteypuna er valin. Ef fyrirtækiseiningin sem gögn eru flutt inn frá notar útgáfu Microsoft Dynamics NAV4.0 eða nýrri, er .xml-snið valið. Annars er .txt-snið valið. |
Númer fylgiskjals | Færa þarf inn númer skjalsins sem á að nota í allar færslur sem stofnaðar eru út frá samsteypunni. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |