Hugsanlega þarf að endurskipuleggja vöruhúsið með nýjum hólfakótum og hólfaeinkennum.
Ekki er ráðist í þess háttar aðgerðir oft en þær aðstæður geta komið upp að endurflokkun sé nauðsynleg til þess að ná fram eða viðhalda skilvirkni. Dæmi:
-
Skipta þarf í hólfakóta sem styðja notkun sjálfvirkar gagnatöku, til dæmis með handtölvum.
-
Keypt hefur verið nýtt hillukerfi í vöruhúsið sem býður nýja möguleika við geymslu á vörum.
-
Fyrirtækið gæti hafa breytt vöruúrvali sínu og flutt sjálft vöruhúsið á nýjan stað til að bregðast við þessum breytingum.
Ef vöruhúsið er sett upp fyrir hólf en ekki beinan frágang og tínslu skal endurskipuleggja vöruhúsið með því að búa til nú hólf sem nota á í framtíðinni.
Til að endurskipuleggja einfalt vöruhús sem notar aðeins hólf
Í reitnum Leit skal færa inn Birgðageymslur og velja síðan viðkomandi tengil.
Á flýtiflipanum Vöruhús skal stilla reitinn Sjálfgefið hólfaval á Síðast notaða hólf.
Allt innihald hólfanna sem til eru fyrir er flutt í nýju hólfin sem stofnuð voru.
-
Í reitnum Leit skal færa inn Vöruendurflokkunarbók og velja síðan viðkomandi tengil.
-
Veljið færslubókarlínu og veljið því næst Sækja innihald hólfs úr flokknum Aðgerðir á flipanum Aðgerðir.
-
Á flýtiflipanum Innihald hólfs stillið afmarkanir í reitunum Kóti birgðageymslu, Hólfkóti og Vörunr. til að tilgreina efni sem á að færa.
-
Velja Í lagi til að fylla út færslubókarlínu.
-
Í reitnum Nýr hólfkóti er valið hólfið sem færa á vörurnar í.
-
Endurtaka skal skref b til e fyrir allt hólfainnihald sem á að færa.
-
Á flipanum Aðgerðir í flokknum Bókun veljið Bóka.
-
Í reitnum Leit skal færa inn Vöruendurflokkunarbók og velja síðan viðkomandi tengil.
Nú hafa hólf verið tæmd þar sem vörur voru. Sjálfgefnu hólfin fyrir vörurnar eru nú nýju hólfin í færslubókarlínunum.
Til að endurskipuleggja ítarvöruhús sem notar stýrðan frágang og tínslu
Nýju hólfin sem nota á í framtíðinni eru stofnuð. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að stofna Stök hólf á Hólfastofnunarvinnublaði.
Allt innihald hólfanna sem til eru fyrir er flutt í nýju hólfin sem stofnuð voru.
-
Í reitnum Leit skal færa inn Endurflokkunarbók vöruhúss og velja síðan viðkomandi tengil.
-
Fyrir hólf þar sem engin raunveruleg hreyfing er á vörum skal stofna eina línu fyrir hvert hólf sem til er fyrir í Endurflokkunarbók vöruhúss með gamla hólfakótanum Kóti frá-hólfs og nýja hólfakótanum Kóti til-hólfs.
-
Feli hreyfingar í sér raunverulega tilfærslu sem starfsmenn eiga að framkvæma skal nota Hreyfingavinnublöð til að útbúa hreyfingaleiðbeiningar í stað þess að nota Vöruh.endurflokkunarbókina. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að færa vörur með ítarlegum vöruhúsaaðgerðum.
-
Í reitnum Leit skal færa inn Endurflokkunarbók vöruhúss og velja síðan viðkomandi tengil.
Þegar gömlu hólfin eru tæmd skal endurflokka þau sem hólf af gerðinni GE til að tryggja að þau séu ekki höfð með í vöruflæðum.
-
Í reitnum Leit skal færa inn Birgðageymslur og velja síðan viðkomandi tengil.
-
Valin er línan með birgðageymslunni og síðan Hólf á flipanum Færsluleit.
-
Í glugganum Hólf í reitnum Kóti hólfategundar, færið inn Utanflæðishólf fyrir hvert eldra hólfanna sem tæmt er í skrefi 3 í fyrra ferli.
-
Í reitnum Leit skal færa inn Birgðageymslur og velja síðan viðkomandi tengil.
Nú hafa hólfin verið fjarlægð úr vöruhúsaflæðinu og þær endurflokkaðar sem utanflæðishólf. Utanflæðishólf hafa engan af aðgerðareitunum í glugganum Hólfategundir valinn og eru því ekki tekin með í vöruflæðinu. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að setja upp hólfategundir.
Hólfi eytt:
Í reitnum Leit skal færa inn Birgðageymslur og velja síðan viðkomandi tengil.
Veljið birgðageymsluna sem inniheldur þau hólf sem á að eyða. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Birgðageymsla, skal velja Hólf.
Valdar eru línurnar með töflunum sem á að eyða.
Á flipanum Heim í flokknum Stjórna veljið Eyða.
Ef valinn er hnappurinn Já er hólfinu eytt en hólfakótinn helst sá sami í öllum vöruhúsafærslum.
Ef endurnefna á hólf þannig að allar færslur sem tengjast hólfinu séu einnig endurnefndar þ.m.t. færslur sem innihalda hólfainnihald, aðgerðalínur vöruhúsa, skráðar aðgerðalínur vöruhúsa, vinnublaðalínur vöruhúsa, móttökulínur vöruhúsa, bókaðar móttökulínur vöruhúsa, afhendingarlínur vöruhúsa, bókaðar afhendingarlínur vöruhúsa og vöruhúsafærslur er hægt að gera það í glugganum Hólf.
Hólf endurnefnt og hólfkóta breytt í öllum færslum
Í reitnum Leit skal færa inn Birgðageymslur og velja síðan viðkomandi tengil.
Veljið birgðageymsluna þar sem á að endurnefna hólf eða breyta hólfakóta og á flipanum Færsluleit, í flokknum Birgðageymsla, skal velja Hólf.
Veljið hólfið sem á að breyta og færið nýjan hólfkóta í reitinn Kóti.
Velja hnappinn Já.
Til athugunar |
---|
Ef Já er valið og margar færslur tengjast þessu hólfi, t.d. ef vöruhúsaskjölum hefur ekki verið eytt lengi, getur tekið nokkurn tíma að endurnefna allar færslurnar. Ef þessi aðferð er notuð ætti því að íhuga að keyra keyrsluna Eyða skráðum vöruh. skjölum áður en byrjað er að endurnefna. Einnig er bent á að einu skjölin sem er eytt í þessari runuvinnslu eru frágangur, tínslur og hreyfingar. Ef verið er að endurnefna móttökuhólf eða afhendingarhólf verða allar bókaðar móttökur eða afhendingar sem tengjast viðkomandi hólfi endurnefndar. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |
Sjá einnig
Hönnunarupplýsingar vöruhúsakerfi
Verkhlutar
Hvernig á að setja upp birgðageymslur til að þær noti hólfHvernig á að setja upp vöruhús fyrir beinan frágang og tínslu
Hvernig á að setja upp Vöruhúsakerfið
Hvernig á að setja upp Innihald hólfa
Hvernig á að eyða skráðum vöruhúsaskjölum