Hægt er að endurúthluta forða beint úr þjónustupöntun eða þjónustutilboði á meðan unnið er.
Forða endurúthlutað út frá þjónustupöntun
Í reitnum Leita skal færa inn Þjónustupantanir og velja síðan viðkomandi tengi.
Opna skal viðeigandi þjónustupöntun.
Smellt er á þjónustuvörulínuna sem samsvarar þjónustuverkhlutanum sem á að úthluta forða. Velja Aðgerðir, velja Lína og smella síðan á Úthlutun forða. Glugginn Úthlutun forða opnast.
Í glugganum Úthlutun forða er valin úthlutunarfærslan með þjónustuverkhlutanum sem endurúthluta á forðanum til. Í reitnum Forðanr. er viðeigandi forði valinn. Hann kemur í staðinn fyrir forðanúmerið sem þegar er í reitnum.
Ýtið á færslulykilinn. Þá opnast svargluggi og spurt er hvort endurúthluta eigi færslunni. Fyllið út reitinn Ástæðukóti ef það á við og veljið hnappinn Í lagi til að staðfesta endurúthlutun.
Reitirnir Úthlutunardags. og Úthlutaðar stundir eru fylltir út. Nú sýnir færslan nýjan forða og staðan er Virk .
Til athugunar Eldri færslan er enn til en staðan er uppfærð á eftirfarandi hátt: -
Hafi þjónustan hafist þegar úthlutun var Virk hafi viðgerðarstaða þjónustuvörunnar í færslunni breyst í Í vinnslu breytist úthlutunarstaðan úr Þarf að endurúthluta í Lokið.
-
Hafi þjónusta ekki hafist á meðan úthlutun var Virk breytist úthlutunarstaða úr Þarf að endurúthluta í Hætt við.
-
Ef endurúthlutað er þjónustupöntun sem breytt var úr tilboði breytir kerfið alltaf stöðu úthlutunarfærslnanna sem skráðar eru fyrir tilboðið í Lokið þegar þjónustuvörunum í þjónustupöntuninni er endurúthlutað.
-
Hafi þjónustan hafist þegar úthlutun var Virk hafi viðgerðarstaða þjónustuvörunnar í færslunni breyst í Í vinnslu breytist úthlutunarstaðan úr Þarf að endurúthluta í Lokið.
Skrefin eru endurtekin fyrir hvern lið þjónustukostnaðar sem á að endurúthluta.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |