Þessa áætlanagerð er hægt að framkvæma í glugganum Pantanaáætlun sem birtir alla nýja eftirspurn auk upplýsinga um ráðstöfunarmagn og tillögum um framboð. Hann veitir nauðsynlegan sýnileika og verkfæri til að gera skilvirkar áætlanir um eftirspurn úr sölulínum og íhlutalínum og stofna síðan beint mismunandi tegundir af framboðspöntunum.
Hægt er að opna gluggann Pantanaáætlun á tvenna vegu, eftir því hvert markmiðið er.
Til að gera áætlun fyrir nýja framleiðslupöntunareftirspurn
Í reitnum Leit skal færa inn Framleiðslupantanir og velja síðan viðkomandi tengil. Hægt er að framkvæma þessi skref fyrir áætlaða, fastáætlaða eða útgefna framleiðslupöntun.
Opna framleiðslupöntunina sem á að áætla. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Panta, skal velja Áætlun.
Í glugganum Pantanaáætlun á flipanum Aðgerð í flokknum Eiginleikar veljið Reikna áætlun.
Glugginn birtir áætlanalínur eftir yfirlitsafmörkuninni Framleiðslueftirspurn sem þýðir óuppfylltar íhlutalínur allra framleiðslupantana sem eru til. Eftirspurn fyrir aðeins eina framleiðslupöntunina er ekki sýnd vegna þess að nauðsynlegt er að áætla fyrir eina framleiðslupöntun með yfirsýn yfir eftirspurn fyrir hugsanlegar eldri íhlutalínur. Áætlanalínur fyrir framleiðslupöntunina eru stækkaðar.
Áætlað fyrir alla nýja eftirspurn
Í glugganum Pantanaáætlun á flipanum Aðgerð í flokknum Eiginleikar veljið Reikna áætlun.
Glugginn birtir áætlanalínur eftir yfirlitsafmörkuninni Alla eftirspurn sem þýðir pantanalínur sem og framleiðsluíhlutalínur með ónægt ráðstöfunarmagn. Hægt er að breyta þessari afmörkun eftir þörfum.
Meðan verið er að reikna áætlunina greinir kerfið alla nýja eftirspurn sem myndast hefur síðan áætlunin var síðast reiknuð. Magnið sem þörf er á fyrir hverja eftirspurnarlínu sem finnst er reiknað út og byggir á heildarmagni sem til ráðstöfunar er. Þessi útreikningur er gerður fyrir hverja pöntun fyrir sig þannig að pöntunin með eftirspurnarlínunni með fyrsta skiladegi eða afhendingardegi er skoðuð fyrst og allar aðrar eftirspurnarlínur í þeirri framleiðslupöntun, óháð skila- eða afhendingardagsetningum einstakra lína, eru einnig reiknaðar fyrir þá pöntun. Þess vegna hafa allar áætlunarlínur undir einni pöntunarhauslínu sömu eftirspurnardagsetningu. Þegar útreikningnum er lokið birtist öll óuppfyllt eftirspurn sem áætlanalínur, flokkaðar eftir fyrstu eftirspurnardagsetningunni og með ýmsa magnreiti útfyllta.
Glugginn Pantanaáætlun er fylltur út með pöntunarhausslínum sem standa fyrir pantanir með óuppfyllta eftirspurn.
-
Reiturinn Dags. eftirsp. inniheldur fyrstu skila-/afhendingardagsetningu eftirspurnarlínu í pöntuninni.
-
Reiturinn Tegund eftirspurnar sýnir hvort eftirspurnin er úr sölulínum eða íhlutalínum.
- Lýsingarreiturinn inniheldur eftirfarandi eftir því hver tegund eftirspurnar er.
Tegund eftirspurnar Lýsing Framleiðsla
Lýsing á framleiddri vöru.
Fyrir eftirspurn framleiðslu fyrir framleiðslupöntun verkefnis birtist nafn viðskiptamannsins. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að áætla verkefnispantanir.
Sala
Nafn viðskiptamanns.
Fyrsta áætlanalínan hefur fyrstu eftirspurnardagsetninguna og þess vegna skal áætla hana fyrst. Til að sjá raunverulegu eftirspurnarlínurnar (sölupöntunarlínur eða íhlutalínur) hverrar pöntunarhausslínu verður að stækka línuna
-
Reiturinn Dags. eftirsp. inniheldur fyrstu skila-/afhendingardagsetningu eftirspurnarlínu í pöntuninni.
Smellt er á táknið Stækka (+) fyrir framan dagsetninguna í reitnum Dags. eftirsp. til að sjá undirliggjandi áætlanalínur sem tákna eftirspurnarlínur með ónægt ráðstöfunarmagn.
Hægt er að sjá gildi fyrir hverja stækkaða áætlunarlínu, þ.e. eftirspurnarlínu, í upplýsingareitunum neðst í glugganum.
Valkostur Lýsing Magn í öðrum birgðageymslum
Sýnir hvort vara er til í annarri birgðageymslu. Þá er hægt að fletta henni upp og velja hana.
Staðgenglar eru til
Sýnir ef staðgengilsvara er búin til fyrir vöruna. Þá er hægt að fletta henni upp og velja hana. Hafa ber í huga að þessi aðgerð á aðeins við um íhluti, þ.e. úr eftirspurnarlínum af tegundinni Framleiðsla.
Tiltækt magn
Sýnir heildarráðstöfunarmagn vöru, þ.e. áætlaða stöðu til ráðstöfunar.
Fyrsta tiltæka dagsetning
Sýnir komudagsetningu framboðspöntunar á innleið sem getur uppfyllt það magn sem þarf á dagsetningu sem er eftir eftirspurnardagsetninguna.
Í reitnum Áfyllingarkerfi er valið hvaða tegund framboðspöntunar á að búa til.
Sjálfgefna gildið er gildi birgðaspjaldsins eða birgðahaldseiningaspjalds. Hins vegar er hægt að breyta því í einn af þrem eftirtöldum valkostum:
Valkostur Lýsing Innkaup
Stofnar innkaupapöntun.
Millifærsla
Stofnar millifærslupöntun.
Framl.pöntun
Stofnar framleiðslupöntun.
Í reitnum Framboð frá þarf að velja gildi í samræmi við valið áfyllingarkerfi.
Til athugunar Ef reiturinn er ekki útfylltur birtir kerfið villumeldingu þegar aðgerðin Gera framboðspöntun er notuð og engin framboðspöntun er búin til fyrir viðkomandi áætlanalínu. Þetta á hins vegar ekki við þegar áfyllingarkerfið er Framl.pöntun. Úr reitnum Framboð frá er leitað að viðeigandi lista og valið hvaðan framboð kemur:
-
Ef áfyllingarkerfið er Innkaup flettir uppflettihnappurinn í reitnum upp í glugganum Birgðalisti lánardrottins
-
Ef áfyllingarkerfið er Millifærsla flettir uppflettihnappurinn í reitnum upp í glugganum Staðsetningalisti.
Ef varan er til í annarri birgðageymslu sýnir reiturinn Magn í öðrum birgðageymslum, neðst, gildi. Þá er hægt að fletta upp og velja birgðageymsluna sem varan á að koma frá þegar millifærslupöntunin er búin til.
Ef staðgengill er til fyrir vöruna sem spurt er eftir inniheldur reiturinn Staðgengill er til stilltur á Já. Þá er hægt að fletta upp glugganum Staðgengilsvörufærslur og velja staðgengil.
-
Ef áfyllingarkerfið er Innkaup flettir uppflettihnappurinn í reitnum upp í glugganum Birgðalisti lánardrottins
Gátmerki er sett í reitinn Frátekið til að stofna frátekningu milli framboðspöntunar sem er verið að stofna og eftirspurnarlínunar pöntunin er gerð fyrir. Reiturinn er sjálfgefið tómur.
Til athugunar Aðeins er hægt að velja þennan gátreit ef varan er Valfrjálst eða Alltaf í reitnum Frátekið á birgðaspjaldinu. Í reitnum Magn til pöntunar er sett inn magnið sem fer í framboðspöntunina sem stofnuð var.
Sjálfgefna gildið er sama magn og það sem er í reitnum Magn sem þarf . Á hinn bóginn kann að vera að panta þurfi meira eða minna magn, allt eftir þekkingu á ástandi eftirspurnar. Til dæmis ef glugginn Pantanaáætlun sýnir að nokkrar ótengdar eftirspurnarlínur eru fyrir sömu keyptu vöruna og með svipaða skiladagsetningu er hægt að steypa þeim saman með því að færa heildarmagn þeirra í reitinn Magn til pöntunar í einni línu og svo eyða hinum óþörfu áætlanalínunum fyrir umrædda vöru.Í reitina Skiladagur og Pöntunardags. er hægt að færa inn dagsetningarnar sem á að nota á stofnaðar framboðspantanir.
Þessir tveir reitir tengjast samkvæmt reitnum Sjálfgefið öryggisforskot sem er í glugganum Framleiðsluuppsetning. Sjálfgefið er að skiladagur sé sá sami og dagsetning eftirspurnar, en hægt er að breyta þessu að vild.
Til athugunar |
---|
Ef færð er inn seinni dagsetning en dagsetning eftirspurnar birtast viðvörunarboð. |
Framboðspantanir gerðar
Í reitnum Leit skal færa inn Framleiðslupantanir og velja síðan viðkomandi tengil. Hægt er að framkvæma þessi skref fyrir áætlaða, fastáætlaða eða útgefna framleiðslupöntun.
Opna framleiðslupöntunina sem á að áætla. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Panta, skal velja Áætlun.
Bendillinn er færður á viðeigandi áætlunarlínu. Í glugganum Pantanaáætlun á flipanum Aðgerð í flokknum Almennur veljið Búa til pöntun.
Í glugganum Gera framboðspantanir á flýtiflipanum Pantanaáætlun í reitnum Gera pantanir fyrir skal velja eitt af eftirfarandi valkostum.
Valkostur Lýsing Virka línan
Gera einungis framboðspöntun fyrir línuna sem bendillinn er á.
Virka pöntunin
Gera framboðspantanir fyrir allar línur í pöntuninni sem bendillinn er á.
Allar línur
Gera framboðspantanir fyrir allar línur í glugganum Pantanaáætlun.
Á flipanum Valkostir er tilgreint hvernig framboðspantanir eða innkaupatillögulínur á að gera.
Til athugunar Þær stillingar sem síðast voru gerðar glugganum Gera framboðspantanir eru vistaðar undir notendakenni þess sem þær gerir þannig að þær eru þær sömu næst þegar sá hinn sami notar gluggann. Veldu hnappinn Í lagi til að láta forritið búa til þær framboðspantanir eða innkaupatillögulínur sem stungið er upp á.
Nú hefur verið áætlað fyrir óuppfylltri eftirspurn með því að gera viðeigandi framboðspantanir. Nánari upplýsingar um tiltekin verkflæði þegar glugginn Pantanaáætlun er notaður fara eftir verklagsreglum viðkomandi fyrirtækis.
Þegar áætlanavinnu er lokið í glugganum Pantanaáætlun, t.d. við að tilgreina annan valkost í útvega magnið, er hægt að byrja á að búa til framboðspantanir fyrir eina eða fleiri áætlanalínur.
Til athugunar |
---|
Framboðspantanirnar sem gerðar eru kunna að búa til nýja háða eftirspurn, t.d. fyrir undirliggjandi framleiðslupantanir, og þess vegna ætti að velja aftur Reikna áætlun til að finna slíkt og vinna úr því áður en haldið er áfram niður listann. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |