Tilgreinir ef bókarlínan verður jöfnuð við fylgiskjal sem þegar hefur verið bókað. Í slíku tilviki skal rita hér tegund fylgiskjalsins sem jafna á við.

Reiturinn er eingöngu notaður ef tegund reiknings er reikningur viðskiptamanns eða lánardrottins.

Mikilvægt
Ef jafna á bókarlínuna við fleiri en eina færslu samtímis verður að nota aðgerðina Setja kenni jöfnunar í staðinn fyrir þennan reit. Þessi aðgerð notar ekki reitinn Tegund jöfnunar eða reitinn Jöfnunarnúmer en notar reitinn Kenni jöfnunar í staðinn.

Bókarlína er jöfnuð, til dæmis, ef jafna á kreditreikning við bókaðan reikning, eða jafna þarf reikning við inngreiðslu.

Smellt er á reitinn til þess að skoða þær tegundir fylgiskjala sem hægt er að jafna við. Valið stendur um:

Ef kreditreikningur verður jafnaður við reikning er Reikningur valinn og viðkomandi reikningsnúmer fært inn í reitinn Jöfnunarnúmer.

Ef reikningur verður jafnaður við inngreiðslu er Greiðsla valin og númer inngreiðslunnar fært inn í reitinn Jöfnunarnúmer.

Mikilvægt
Ef númer fylgiskjals er valið í reitnum Jöfnunarnúmer er fyllt sjálfkrafa út í reitinn Tegund jöfnunar.

Ábending

Sjá einnig