Inniheldur ýmsar sértöflur fyrir verk sem vinna þarf vegna uppgjörs VSK og skýrslna til tolla- og skattayfirvalda. Töflurnar má nota til að láta kerfið:
reikna gjaldfallinn VSK fyrir tiltekið tímabil,
útbúa og prenta VSK-yfirlit
prenta lista um sölu til ESB-landa/svæða (á pappír eða skrifa hann á diskling)
Kerfið stofnar færslu í töflunni VSK-færsla vegna allra bókaðra viðskipta þar sem um VSK er að ræða. Þessar færslur eru notaðar til að reikna VSK sem á að gera upp fyrir tiltekið tímabil. Með VSK-uppgjöri er tilgreint hvernig kerfinu er ætlað að reikna VSK þegar útreikningur á að fara fram.
Stofna má mismunandi tegundir VSK-yfirlits í glugganum Sniðmát VSK-yfirlits ef þörf er á mismunandi sniðum. Ef þörf er á mismunandi VSK-yfirlitum sem grundvallast á sama sniðmáti eru mismunandi heiti sett í gluggann Heiti VSK-yfirlits.
VSK-yfirlitið sjálft er fyllt út í glugganum VSK-yfirlit. Í þeim glugga gefst kostur á að skilgreina VSK-yfirlitið á grundvelli reikninga í glugganum Bókhaldslykill eða færslna í töflunni VSK-færsla.
VSK-yfirlit er alla jafna aðeins skilgreint þegar gengið er frá uppsetningu kerfisins að öðru leyti. Þar er glugginn VSK-yfirlit settur upp þannig að hann hæfi því VSK-yfirliti sem viðkomandi fyrirtæki á að skila.
Þegar VSK-yfirlit hefur verið skilgreint má prenta það með því að smella á Aðgerðir, færa bendilinn á Aðgerðir og síðan smella á Prenta. Eftir að VSK-yfirlitið hefur verið prentað og samþykkt er hægt að keyra keyrsluna Reikna og bóka VSK-uppgjör til að loka opnum VSK-færslum og flytja VSK-upphæðir innkaupa og sölu í VSK-uppgjörsreikning.