Opnið gluggann Kreditreikningsupplýsingar þjónustu.

Tilgreinir tölfræðilegar upplýsingar um línur í bókuðum þjónustukreditreikningi. Glugginn opnast úr glugganum Bókaður þjónustukreditreikningur þegar smellt er á Tengdar upplýsingar, bent á Kreditreikningur og smellt á Upplýsingar.

Glugginn er tvískiptur; haus og línur. Hausinn er með tvo flýtiflipa: Almennt og Viðskiptamaður. Almennt, Sundurliðað, Afhenda, Þjónustulína og Viðskiptamaður. Þessir flýtiflipar sýna upplýsingar eins og magn, upphæð, VSK, kostnað, framlegð og hámarksskuld viðskiptamanns. Upphæðirnar í glugganum eru á sama gjaldmiðli og þjónustukreditreikningurinn, nema annað sé tilgreint.

Reitirnir á flýtiflipanum Almennt sýna eftirfarandi upplýsingar:

Reitur Lýsing

Upphæð

Þessi reitur sýnir nettóupphæð allra línanna á bókaða þjónustukreditreikningnum. Þessi upphæð er ekki með VSK eða afslætti en felur í sér línuafslátt.

Reikningsafsl.upphæð

Þessi reitur sýnir upphæð reikningsafsláttarins fyrir allan þjónustukreditreikninginn. Ef gátmerki er í reitnum Reikna reikn.afsl. í glugganum Sölugrunnur hefur afslátturinn verið reiknaður sjálfkrafa. Annars er hann reiknaður þegar smellt er á Aðgerðir, bent á Aðgerðir og smellt á Reikna reikningsafsl. áður en kreditreikningurinn er bókaður.

Samtals

Þessi reitur sýnir nettóupphæð að frátalinni reikningsafsláttarupphæð bókaða þjónustukreditreikningsins. Upphæðin telur ekki með VSK.

% VSK eða

VSK-upphæð

Þessi reitur sýnir heildarupphæð VSK á bókaða þjónustukreditreikningnum.

Brúttóupphæð

Þessi reitur sýnir heildarupphæð á þeim þjónustukreditreikningi, með VSK, sem hefur verið bókaður á reikning viðskiptamanns.

Sala (SGM)

Þessi reitur sýnir töluna í reitnum Samtals að ofan eins og hún er yfirfærð í SGM.

Upphaflegur kostnaður (SGM)

Þessi reitur sýnir heildarkostnað, í SGM, fjárhagsreikningsfærslna, kostnaðar, vara og/eða forða á bókuðum þjónustukreditreikningi. Kostnaðurinn var reiknaður með því að margfalda kostnaðarverð með magni viðeigandi vara, forða og/eða kostnaðar í bókaða kreditreikningnum.

Leiðréttur kostnaður (SGM)

Þessi reitur birtir heildarkostnað vara í bókaða þjónustukreditreikningnum, í SGM, sem leiðréttur hefur verið samkvæmt breytingum í upphaflegum kostnaði þessara vara. Ef gildið í reitnum er jafnt núlli merkir það að engar gildisfærslur eru til staðar til að reikna, mögulega vegna gagnaþjöppunar eða vegna þess að leiðréttingarkeyrslan (Leiðr. kostnað - Birgðafærslur) hefur ekki verið keyrð.

Upphæð kostnaðarleiðr. (SGM)

Þessi reitur birtir mismuninn á milli upphaflega kostnaðarins og leiðrétts heildarkostnaðar vara í bókaða þjónustukreditreikningnum. Núllgildi í reitnum merkir eitt af eftirfarandi: upphaflegur kostnaður og leiðréttur heildarkostnaður er jafn eða engar færslur eru til staðar til útreiknings, hugsanlega vegna gagnaþjöppunar.

Upphafleg framlegð (SGM)

Þessi reitur birtir upphæð framlegðar fyrir bókaða þjónustukreditreikninginn (í SGM), áður en vara er kostnaðarleiðrétt. Kerfið reiknar upphæðina sem mismun milli gilda í reitunum Upphæð og Upphafleg framlegð (SGM).

Leiðrétt framlegð (SGM)

Þessi reitur birtir upphæð framlegðar fyrir þjónustukreditreikning, í SGM, sem leiðrétt hefur verið vegna breytinga í upphaflegum kostnaði vöru. Kerfið reiknar upphæðina sem mismun á milli gilda í reitunum Upphæð og Leiðréttur kostnaður (SGM). Núll í þessum reitum merkir að engar færslur eru til staðar í útreikning, hugsanlega vegna gagnaþjöppunar.

Upphafleg framlegðar%

Þessi reitur birtir upphaflega framlegðarupphæð í prósentum.

Leiðrétt framlegðar%

Þessi reitur birtir upphæð leiðréttrar framlegðar þjónustukreditreikningsins, gefið upp sem prósenta af upphæðinni í reitnum Upphæð.

Magn

Þessi reitur sýnir magn allra fjárhagsreikningsfærslna, vara og/eða forða í bókaða þjónustukreditreikningnum. Ef sléttuð upphæð stafar af því að gátmerkið Sléttun reiknings í töflunni Sölugrunnur var valið er magn vara, forðastunda, kostnaðar og/eða fjárhagsreikningsfærslna í þjónustukreditreikningnum plús einn í reitnum Magn.

Pakkningar

Þessi reitur sýnir heildarfjölda pakkninga á bókaða þjónustukreditreikningnum.

Nettóþyngd

Þessi reitur sýnir heildarnettóþyngd vara á bókaða þjónustukreditreikningnum.

Brúttóþyngd

Þessi reitur sýnir brúttóþyngd vara á bókaða þjónustukreditreikningnum.

Rúmmál

Þessi reitur sýnir heildarrúmmál vara á bókaða þjónustukreditreikningnum.

Upphæðin í reitnum Brúttóupphæð er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Sléttunarnákvæmni reikninga í gjaldmiðilstöflunni fyrir viðeigandi gjaldmiðil. Gildin í reitunum Upphæð, Kostnaður (ISK) og Framlegð (ISK) eru sléttuð samkvæmt innihaldi í reitnum Upph. sléttunarnákvæmni í gjaldmiðilstöflunni.

Reitirnir á flýtiflipanum Almennt sýna eftirfarandi upplýsingar:

Staða (SGM)

Þessi reitur sýnir stöðu í SGM á reikningi viðskiptamanns.

Hámarksskuld (SGM)

Tveir reitir sýna upplýsingar um hámarksskuld viðskiptamanns. Fyrri reiturinn sýnir hámarksskuld viðskiptamannsins í SGM sem þessi þjónustukreditreikningur var stofnaður og bókaður fyrir. Seinni reiturinn sýnir framvindustiku fyrir prósentu hámarksskuldar sem viðskiptamaður hefur notað.

Línurnar í neðri hluta gluggans Kreditreikningsupplýsingar þjónustu birta sundurliðun VSK% fyrir upphæðirnar í bókaða þjónustukreditreikningnum.

Ábending

Sjá einnig