Inniheldur almennar upplýsingar um bókaðan kreditreikning. Þar með taldar eru upplýsingar um viðskiptamanninn sem fær þjónustuna og viðskiptamaðurinn sem reikningsfæra skal á, svo sem nafn, aðsetur, númer fylgiskjals og dagsetning, ásamt afsláttarskilmálum greiðslu og gjaldmiðilskóða, svartíma, upphafs-og lokadagsetningar o. s. frv. Gögnin eru notuð í haus bókaðs þjónustukreditreiknings. Í þjónustukreditreikningnum er hausinn með eina eða fleiri þjónustukreditreikningslínur tengdar. Línurnar tilgreina númer, magn og verð vörunnar/ forðans á kreditreikningnum.
Kerfið afritar upplýsingarnar úr töflunni Þjónustuhaus þegar kreditreikningurinn er bókaður.
Ekki er hægt að breyta neinum reitanna á þjónustukreditreikningshaus eða -línum þar sem kreditreikningurinn hefur þegar verið bókaður.