Í stað þess að skoða raunverulegar og áætlaðar upphæðir á öllum reikningum innan ákveðins tímabils er hægt að skoða fjölda tímabila á stökum reikningi.

Að skoða raunverulegar og áætlaðar upphæðir fyrir nokkur tímabil

  1. Í reitinn Leita skal færa inn Bókhaldslykill og velja síðan viðkomandi tengi.

  2. Í glugganum Bókhaldslykill skal velja viðeigandi fjárhagsreikning.

  3. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Staða, skal velja Fjárhagsreikn. - Staða/áætlun.

  4. Fyllt er í reitina í hausnum. Nánari upplýsingar um tiltekinn reit fást með því að velja reitinn og ýta á F1.

  5. Til að sjá tilgreiningu á birtri upphæð skal velja reitinn.

Til athugunar
Afmarkanir sem settar eru í gluggahausinn verða notaðar í fjárhagsfærslum og áætlunarfærslum.

Í dálkunum til vinstri sjást tímabilin eins og þau voru valin. Lengst til hægri eru fimm dálkar. Fyrstu fjórir dálkarnir sýna raunverulegar og áætlaðar debet- og kreditupphæðir á hverjum reikningi. Fimmti dálkurinn sýnir hlutfallsleg tengsl raunverulegra og áætlaðra upphæða á fjárhagsreikningnum.

Ábending

Sjá einnig