Afkastsmagnið sýnir vinnuframvinduna í formi afgreidds magns.
Þegar afkastsmagn er bókað í síðustu aðgerðinni eru birgðir sjálfkrafa uppfærðar.
Bókun afkastsmagns:
Í reitnum Leita skal færa inn Frálagsbók og velja síðan viðkomandi tengi.
Bókunardagsetning er rituð í reitinn Bókunardagsetning.
Í reitinn Framl.pöntunarnúmer er fært inn framleiðslupöntunarnúmerið.
Í reitnum Vörunr. er valið vörunúmerið.
Í reitinn Aðgerðarnr. er fært inn aðgerðarnúmerið.
Í reitinn Afkastsmagn er fært inn vörumagnið.
Ef aðgerðinni er lokið skal velja reitinn Lokið.
Ef vöruhúsið þar sem ganga á frá vörunum notar hólf en krefst ekki frágangsvinnslu skal tengja kóta hólfs við bókarlínuna til að tilgreina hvar skuli setja vörurnar í vöruhúsinu. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að úthluta hólfakótum færslubókarlínur.
Á flipanum Aðgerðir í flokknum Bókun veljið Bóka til að bóka aðgerðirnar. Afkastsmagnið verður bókað. Varan er nú tilbúin til afhendingar.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |