Hægt er að nota samsetningarstjórnun til að sérsníða samsetningaríhlut eftir beiðni viðskiptavinar á meðan söluferlinu stendur. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að selja sem eru settar saman í pöntun.
Eins og fyrir aðrar tegundir vöru, er einnig hægt að stofna standandi sölupantanir fyrir sérsniðnar samsetningarvörur áður en gerðar eru reglulegar eiginlegar sölupantanir í samræmi við standandi pöntunarsamninginn. Þetta ferli felur í sér nokkur aukaskref í samanburði við stofnun venjulegrar standandi sölupöntunar, og notar afbrigði tengdrar samsetningarpöntunar, sem er standandi samsetningarpöntun. Frekari upplýsingar eru í Standandi samsetningarpöntun.
Til athugunar |
---|
Eins og allar standandi pantanir er magn í standandi samsetningarpöntunum aðeins spár og er ekki tilbúið fyrr en þeim er breytt í raunverulegar samsetningarpantanir. Þess vegna eru pöntunaraðgerðir, eins og útreikningur á tiltæku magni, frátektir og vörurakning, ekki virkar á standandi samsetningarpöntunum. |
Til að stofna standandi samsetningarpöntun fyrir vöru sem setja skal saman í pöntun
Í reitnum Leit skal færa inn Standandi sölupantanir og velja síðan viðkomandi tengil.
Stofna nýja standandi sölupöntun með eina línu fyrir samsetningu vöru. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að búa til standandi sölupantanir.
Í reitnum Magn til samsetningar til pöntunar í standandi samsetningarpöntunarlínu færið allt magnið inn. Ef dálkurinn er ekki sýnilegur skal opna flýtivalmyndina fyrir dálkhausa og smella á Velja dálka til að bæta henni við.
Til athugunar Ekki ætti að stofna samninga fyrir standandi pöntun fyrir hlutamagn. Því verður að færa inn sama magn og fært var inn í reitinn Magn í línu standandi sölupöntunar. Á flýtiflipanum Línur skal velja Lína, velja Samsetning til pöntunar, og síðan Setja saman í pöntunarlínur. Einnig má velja reitinn Magn til samsetningar til pöntunar í línunni.
Í glugganum Setja saman í pöntunarlínu endurskoðið og breytið samsetningu pöntunalína samkvæmt samningi standandi pöntunar sem hefur verið gerður við viðskiptamanninn. Ef skoða á nánari upplýsingar er farið á flipann Heim og Sýna fylgiskjal valið úr flokknum Vinna til að opna standandi samsetningarpöntunina. Ekki er hægt að breyta innihaldi i flestum reitum, og ekki er hægt að bóka.
Þegar búið er að leiðrétta samsetningarpöntunarlínur samkvæmt standandi pöntunarsamningnum skal loka glugganum Sameina-í-pöntun línur til að fara aftur í gluggann Standandi sölupöntun .
Þegar viðskiptamaður biður um að fá að búa til sölupöntun sem byggir á standandi sölupöntuninni sem fallist var á skal búa til sölupöntun fyrir umsamdar samsetningarvöru eða vörur. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að breyta Standandi sölupöntunum í sölupantanir. Tengd standandi samsetningartilboð og allar sérstillingar tengjast við þessa nýju sölupöntun til undirbúnings á samsetningu vöru eða vörum sem á að selja.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |
Sjá einnig
Standandi samsetningarpöntun
Standandi sölupöntun
Magn til samsetningar til pöntunar
Setja saman í pöntunarlínur
Tengill í samsetningar í pöntun
Verkhlutar
Hvernig á að selja sem eru settar saman í pöntunHvernig á að búa til standandi sölupantanir
Hvernig á að breyta Standandi sölupöntunum í sölupantanir