Opnið gluggann Standandi samsetningarpöntun.

Tilgreinir hvaða vörur og hversu margar vörur á að setja saman og hvaða íhlutavörur eða -forði fer í samsetningarvöruna fyrir tengda standandi sölupöntun.

Standandi samsetningarpantanir virka eins og samsetningarpantanir sem eru tengdar við sölupantanir. Frekari upplýsingar eru í Samsetningarpöntun. Mismunurinn er sá að tengillinn fyrir samsetningu-til-pöntunar bendir á standandi sölupöntun í stað sölupöntunar. Ef valið er í reitnum Samsetning til pöntunar í standandi samsetningarpöntun opnast tengd standandi sölupöntun.

Ef standandi sölupöntun fyrir samsetningarvöru er breytt í sölupöntun verður tengda standandi samsetningarpöntunin og sérstillingar tengdar við nýju sölupöntunina til að undirbúa samsetningu vörunnar eða varanna sem á að selja. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að búa til standandi samsetningarpantanir.

Þar sem litið er á hvers kyns standandi pöntun sem tegund af spá, eru íhlutir á standandi samsetningarpöntunarlínum teknir með í framboðsáætlun sem venjuleg eftirspurn samkvæmt spá. Frekari upplýsingar eru í Um spárvirknina.

Til athugunar
Eins og standandi pantanir er magn í standandi samsetningarpöntunum aðeins spár og er ekki tilbúið fyrr en þeim er breytt í raunverulegar samsetningarpantanir. Þess vegna eru pöntunaraðgerðir, eins og útreikningur á tiltæku magni, frátektir og vörurakning, ekki virkar á standandi samsetningarpöntunum.

Ábending

Sjá einnig