Sýnir VSK-útreikn.tegundina sem kerfið notar fyrir mótreikninginn í þessari færslubókarlínu þegar þessi færsla er bókuð.

Kerfið færir sjálfkrafa í reitinn með því að nota töfluna VSK-bókunargrunnur.

Til að sjá tiltæka valmöguleika skal velja reitinn.

Eftirfarandi tafla lýsir valkostunum.

Valkostur

Lýsing

Venjul. VSK

Þegar þessi kostur er valinn reiknar Microsoft Dynamics NAV VSK fyrir vörurnar í þessari línu og stofnar VSK-færslu með upphæðinni.

Bakfærður VSK

Þessi valkostur er notaður vegna viðskipta við lönd/svæði innan ESB þegar kaupandinn verður að reikna út VSK og standa skil á honum við skattyfirvöld.

Einnig þarf að muna að fylla út reitinn Reikningur bakfærðs VSK. Þessi kostur hefur engin áhrif á ársreikninga fyrirtækisins. Við sölu á vörum með bakfærðum VSK er VSK hvorki reiknaður né frádreginn. Við kaup á vörum reiknar Microsoft Dynamics NAV upphæð VSK og debetfærir á innkaupareikning VSK og kreditfærir á reikning bakfærðs VSK.

Eingöngu VSK

Þessi valkostur er notaður þegar öll upphæðin sem á að bóka er VSK. Þessi kostur kann til dæmis að henta þegar leiðréttingarfærsla er gerð til leiðréttingar á villu í VSK-útreikningi.

Söluskattur

Þessi valkostur er notaður ef Microsoft Dynamics NAV þarf að reikna bandarískan söluskatt í stað VSK.

Ábending

Sjá einnig