Úthlutar upphæð í eignafjárhagsbók eða almennri ítrekunarbók á ýmsa reikninga eða víddir. Það er að segja, einum eða fleiri jöfnunarreikningum er úthlutað upphæðinni. Hægt er að úthluta ýmsum tegundum upphæða, eins og stofnkostnaði, afskrift og viðhaldi.

Eftir að úthlutanirnar hafa verið settar upp setur kerfið sjálfkrafa upp þá reikninga sem voru tilgreindir þegar aðgerðin Endurflokka úr eignaendurflokkunarbókinni er notuð eða þegar aðgerðin Setja inn mótreikn. eigna er notuð með:

Í glugganum Eignaúthlutanir verður að setja upp úthlutunarlínu fyrir hvern hluta þeirrar upphæðar sem er úthlutað. Hægt er að færa inn ýmsa reikninga í hverja eignaúthlutunarlínu (ef eignabókunarflokknum er einnig skipt milli ýmissa reikninga). Eða hægt er að færa inn sama reikninginn með mismunandi víddargildiskótum í hverja línu. Eigi að tengja við vídd er smellt á Tengdar upplýsingar, Lína, Víddir.

Aðeins þarf að færa úthlutun einu sinni. Úthlutunin verður áfram í glugganum Eignaúthlutanir. Þá er hægt að nota aðgerðina Setja inn mótreikn. eigna í eignafjárhagsfærslubókinni til að láta kerfið setja inn mótreikning(a) sem voru tilgreindir í glugganum Eignaúthlutanir.

Sjá einnig