Tilgreinir VSK-skilgreiningu viðskiptamanns til að tengja færslur sem búnar voru til fyrir þennan viðskiptamann með viðeigandi fjárhagsreikning samkvæmt VSK-bókunargrunninum.
Kerfið sækir kótann sjálfkrafa í töfluna Viðskiptamaður þegar fyllt er í reitinn Reikn.færist á viðskm.
Kótinn tilgreinir hvaða VSK-viðskiptabókunarflokki viðkomandi viðskiptamaður tilheyrir. Kerfið notar viðskiptakótann ásamt reitunum VSK-vörubókunarflokkur og Alm. bókunartegund til að ákvarða tiltekna viðskiptaskilmála. Þegar bókaðar eru færslur sem varða viðskiptamanninn leitar kerfið uppi kóta VSK-viðskipta í tengslum við kóta VSK- vörubókunarflokks í glugganum VSK-bókunargrunnur þar sem fram kemur VSK-prósenta, tegund VSK-útreiknings og fjárhagsreikningar fyrir bókun VSK.
Skoða má VSK-viðskiptabókunarflokka í töflunni VSK Viðskiptabókunarflokkur með því að smella á reitinn.
Yfirleitt ætti ekki að breyta efni þessa reits en það kann að vera nauðsynlegt í sérstökum tilvikum þegar sjálfgefni kótinn á ekki við.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |