Vaxtareikningur er skjal með upplýsingum um reiknaða vexti á ógreiddar skuldir. Með honum má líka láta viðskiptamann vita af því að vaxtaupphæð verði til þess að hækka ógreidda skuld. Einnig má reikna og prenta vexti á innheimtubréf.

Vaxtareikningur er settur saman úr vaxtareikningshaus og ýmsum vaxtareikningslínum. Í vaxtareikningshaus eru upplýsingar varðandi viðskiptamann, svo sem um heiti hans, aðsetur og vaxtatímabil. Þar eru líka upplýsingar um vaxtareikninginn, svo sem dagsetning fylgiskjals og gjalddagi. Megnið af þessum upplýsingum sækir kerfið í töflurnar Viðskiptamaður og Vaxtatímabil.

Í vaxtareikningslínum eru upplýsingar varðandi ógreiddar upphæðir sem á að reikna á vexti (svo sem um númer fylgiskjals, gjalddaga og eftirstöðvar).

Vaxtaþáttur grundvallast á helstu upplýsingum um hvern viðskiptamann. Hann býr yfir víðtækum valkostum, svo sem sveigjanlegum vöxtum og öðrum gjöldum er stofna skal vaxtareikninga fyrir viðskiptamenn. Einnig er um það að velja hvort vexti og/eða gjöld skuli bóka á viðkomandi fjárhags- og viðskiptamannareikninga þegar vaxtareikningar eru sendir.

Vaxtareikninga má stofna með sjálfvirkum hætti með keyrslunni Stofna vaxtareikninga. Þessi keyrsla stofnar einn vaxtareikning á gjaldmiðil sem viðskiptamannafærslur þar sem vextir eru reiknaðir finnast fyrir.

Nýr vaxtareikningur er stofnaður með handvirkum hætti með því að stofna vaxtareikningshaus og nota síðan keyrsluna Leggja til vaxtareikn.línur.

Eftir að gengið hefur verið frá vaxtareikningshaus og viðkomandi línum skal senda reikninginn.

Til athugunar
Microsoft Dynamics NAV notar aðferð opin-vara bókhald til að reikna vexti á viðskiptamenn með gjaldfallnar upphæðir fyrir opna reikninga og kreditreikninga. Útreikningurinn á bæði við um opnar færslur þar sem greiðsla er gjaldfallin og lokaðar færslur þar sem greiðsla var of sein. Opinn reikningur er því hafður með í útreikningnum þangað til heildarupphæð hans hefur verið jöfnuð við greiðslu. Microsoft Dynamics NAV notar ekki bókhaldsaðferð framvirkrar afstemmingar sem felur í sér að innistæður viðskiptavina ákvarði hvort reikna eigi vexti eða ekki. Opnar greiðslur eru undanskildar af þeirri ástæðu.

Sjá einnig