Tilgreinir hvernig öll fyrirtæki í aðildarríkjum ESB ber skylda til að gefa skýrslu um viðskipti sín í öðrum ESB-löndum/svæðum í Intrasta-skýrslugerð.

Nota má gluggann Intrastatbók við þessa skýrslugerð. Annaðhvort getur notandi sjálfur sett færslur í gluggann eða látið kerfið færa þær inn sjálfkrafa með því að smella á Aðgerðir, Sækja færslur í glugga Intrastatbókarinnar. Þegar þetta er gert flytur kerfið aðeins inn færslur úr töflunni Birgðafærsla. Ef um er að ræða fjárhagsfærslur sem eiga að vera með í INTRASTAT-skýrslunni (til dæmis þegar keyptur er skrifstofubúnaður til eigin nota frá öðru ESB-landi/svæði) þarf notandi að færa þær færslur sjálfur.

Ef birgðafærslur eiga að fela í sér nauðsynlegar upplýsingar þegar kerfið flytur þær í intrastatbókarlínu verða þær upplýsingar að hafa verið færðar inn í eftirfarandi töflur:

Land/svæði

Tollflokkur

Flutningsmáti

Tegund viðskipta.

Þessar töflur þarf að útfylla áður en bókun hefst.

Áður en hægt er að nota gluggann Intrastatbók þarf að ákveða hvaða sniðmát intrastatbókar og keyrslur á að nota. Það er hægt að gera úr gluggunum Sniðmát Intrastatbókar og Keyrsla Intrastatbóka.

Í glugganum intrastatbókarkeyrsla er hægt að mynda allnokkur heiti á grundvelli einstakra sniðmáta intrastatbókar. Þar sem Intrastat-skýrslugerð er framkvæmd mánaðarlega þarf að stofna 12 intrastatheiti. Nota skal heiti sem vísa til þess mánaðar sem skýrslan tekur til, til dæmis:

Jan, Feb, Mar

Ef þörf er á nokkrum mismunandi sniðmátum intrastatbókar, til dæmis fyrir fleiri tegundir sniða, verður að setja sniðmátin upp í glugganum Sniðmát Intrastatbókar. Upplýsingar sem þarf til þess að INTRASTAT skili skýrslu sjálfkrafa eru færðar inn í gluggann Intrastatbók.

Sjá einnig