Tilgreinir upplýsingar um Intrastat-skýrslugerð. Öllum fyrirtækjum í aðildarríkjum ESB ber skylda til að gefa skýrslu um viðskipti sín í öðrum ESB-löndum/svæðum.
Við slíka skýrslugerð gefur kerfið kost á því að nota gluggann Intrastatbók. Hægt er að færa færslur í gluggann handvirkt eða láta kerfið færa þær inn sjálfkrafa með því að smella á Aðgerðir, Sækja færslur í glugga Intrastatbókarinnar. Þegar þetta er gert flytur kerfið aðeins inn færslur úr töflunni Birgðafærsla. Ef um er að ræða fjárhagsfærslur sem á að taka með í INTRASTAT-skýrslu (til dæmis ef skrifstofubúnaður til eigin nota er keyptur frá öðru ESB-landi/svæði) þarf notandi að færa þær inn sjálfur.
Ef birgðafærslur eiga að fela í sér nauðsynlegar upplýsingar þegar kerfið flytur þær í intrastatbókarlínu verða þær upplýsingar að hafa verið færðar inn í eftirfarandi töflur:
Þessar töflur þarf að útfylla áður en bókun hefst.
Áður en hægt er að nota gluggann Intrastatbók skal ákveða hvaða intrastatbók á að nota. Það er gert í gluggunum Keyrsla Intrastatbóka og Sniðmát Intrastatbóka.
Í glugganum sniðmát Intrastatbóka er hægt að stofna nokkur sniðmát Intrastatbóka, ef þörf er á ólíkum sniðmátum. Þar sem Intrastat-skýrslugerð er framkvæmd mánaðarlega er hægt að nota 12 intrastatbækur sem miðast við sama sniðmát. Heiti þessara 12 færslubóka eru sett upp í glugganum Keyrsla Intrastatbóka. Upplýsingar sem þarf til þess að INTRASTAT skili skýrslu sjálfkrafa eru færðar inn í gluggann Intrastatbók.
Ekki þarf að vista bækurnar þar sem hægt er að eyða línum og nota bókina aftur í næsta mánuði. Þó er mælt með því að stofna bók fyrir hvern mánuð.
Setja skal heiti bókarsniðmáts og lýsingu á sniðmátinu upp í glugganum Intrastabók, auk þess að tilgreina gátlistaskýrslu og kenni sniðs.
Setja skal upp að minnsta kosti eitt sniðmát ef Intrastat-skýrslu er krafist.