Tilgreinir viðbótarupplýsingar sem þarf fyrir Intrastat-skýrslugerð. Öllum fyrirtækjum í aðildarríkjum ESB ber skylda til að gefa skýrslu um viðskipti sín í öðrum ESB-löndum/svæðum.
Við slíka skýrslugerð gefur kerfið kost á því að nota gluggann Intrastatbókarlína. Annaðhvort getur notandi sjálfur sett færslur í gluggann eða látið kerfið færa þær inn sjálfkrafa með því að smella á Aðgerðir, Sækja færslur í glugga Intrastatbókarinnar. Þegar þetta er gert flytur kerfið aðeins inn færslur úr töflunni Birgðafærsla. Ef um er að ræða fjárhagsfærslur sem á að taka með í INTRASTAT-skýrslu (til dæmis ef skrifstofubúnaður til eigin nota er keyptur frá öðru ESB-landi/svæði) þarf notandi að færa þær inn sjálfur.
Frágengna intrastatbók má annaðhvort skrifa á diskling eða prenta sem skýrslu.
Ef birgðafærslur eiga að fela í sér nauðsynlegar upplýsingar þegar kerfið flytur þær í Intrastatbókarlínu verða upplýsingar um tegund viðskipta að hafa verið færðar inn í gluggann Flutningsmátar.
Til eru sjö eins stafs kótar vegna þeirra sjö aðferða við flutninga sem skilgreindar eru í tengslum við Intrastat:
-
1 með skipum.
-
2 með járnbrautum.
-
3 með flutningabílum.
-
4 með flugvélum.
-
5 með pósti.
-
7 um leiðslur/línur.
-
9 á eigin vegum (til dæmis þegar bíll er fluttur með því að aka honum).
Mælt er með því að setja alla þessa sjö kóta upp í gluggann Flutningsmátar. Þegar kótar eru frágengnir skal færa þá inn í innkaupa- og söluhausa í reitnum Flutningsmátar eða í einstakar innkaupa- og sölulínur í sama reit, um leið og reikningar eru útfylltir.
Ef nota á keyrsluna Sækja birgðafærslur (með því að smella á Aðgerðir, Sækja færslur í glugga Intrastatbókar) skal jafnframt fylla út gluggana Lönd/svæði, Tollflokkar og Tegund viðskipta.