Tilgreinir hvenær færsla ógreidds reiknings hefur verið bókuð og vaxtareikningur eða innheimtubréf er stofnað.
Reitinn má nota til þess að ákvarða hvort telja eigi bókaða færslu með í útreikningi á vöxtum.
Fyrir bókun má færa í reitinn með upphafsstöfum notanda eða einhverjum öðrum kóta til að gefa til kynna að viðskiptamannafærslan skuli bíða samþykkis áður en vöxtum er bætt við hana. Ef reiturinn er fylltur út bíður færslan samþykkis.
Þegar keyrslan Stofna vaxtareikninga eða Leggja til vaxtareikn.línur er keyrð eru færslur sem merktar eru Bið ekki með í vaxtaútreikningi og koma ekki fram á reikningnum.
Þegar keyrslurnar Stofna innheimtubréf eða Leggja til innheimtubr.línur eru notaðar er innheimtubréf ekki stofnað á grunni færslu sem er í bið. Ef innheimtubréf er hins vegar stofnað á grunni annarrar færslu er gjaldfallin færsla sem merkt er í bið einnig tekin með í innheimtubréfinu. Færslan sem er í bið er tekin með í útreikningi á vöxtum.
Hægt er að færa í reitinn í eftirfarandi reitum:
Ef færslan var bókuð úr færslubókarlínu, er efni reitsins afritað úr Bið í færslubókarlínunni.
Ef færslan var bókuð í pöntun, reikningi eða kreditreikningi er efni reitsins afritað úr reitnum Bið.
Hægt er að breyta eða eyða efni þessa reits.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |