Tilgreinir hversu margar færslur fyrir viðskiptamann eða lánardrottin þurfa að samsvara upphæðinni með greiðsluvikmörkum áður en jöfnunarreglan verður notuð til að jafna sjálfvirkt greiðslu við opnu færsluna.
Hægt er að velja eina af eftirfarandi aðferðum:
Valkostur | Lýsing |
---|---|
Ekki tekið með | Jöfnunarreglan þafnast ekki að færslur fyrir viðskiptamann eða lánardrottinn hafi upphæðir sem passa. |
Ein niðurstaða | Jöfnunarreglan þarfnast þess að einn viðskiptamaður eða lánardrottnafærsla passi við upphæðina með greiðsluvikmörkum. |
Margar niðurstöður | Jöfnunarreglan þarfnast þess að margir viðskiptamenn eða lánardrottnafærslur passi við upphæðina með greiðsluvikmörkum. |
Engar niðurstöður | Jöfnunarreglan þarfnast þess að engir viðskiptamenn eða lánardrottnafærslur passi við upphæðina með greiðsluvikmörkum. |
Til athugunar |
---|
Ef þú notar greiðsluafslátt og greiðsludagur er á undan gjalddaga, þá mun Eftirstöðvar með afslætti reiturinn í Jöfnun greiðslu glugganum verða notaður fyrir pörun. Annars verður gildi í reitnum Eftirstöðvar notað. Ef greiðslan fór fram með afsláttarupphæð eftir gjalddaga greiðslunnar, eða upphæðin var greidd að fullu en aflsáttur gefinn, þá mun upphæðin ekki passa. |
Í glugganum Greiðslujöfnunarreglur þarf að velja hvernig tiltekin gögn á greiðsluafstemmingarbókarlínu verða að passa við gögn í einni eða fleiri opinni færslu áður en tengda greiðslan er sjálfkrafa jöfnuð við opnu færslurnar. Gæði hverrar sjálfvirkrar jöfnunar samkvæmt jöfnunarreglum eru sýnd sem gildið Lítil til Mikil í reitnum Áreiðanleiki samsvörunar í Greiðsluafstemmingarbók glugganum. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að setja upp reglur fyrir sjálfvirka jöfnun greiðslna.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |
Sjá einnig
Hvernig á að endurskoða eða jafna greiðslur eftir sjálfvirka jöfnun
Hvernig á að setja upp reglur fyrir sjálfvirka jöfnun greiðslna
Hvernig á að varpa texta á endurteknar greiðslur á reikninga fyrir sjálfvirka afstemmingu
Hvernig á að flytja inn bankayfirlit
Tilvísun
Innan vikmarka upphæðarUtan vikmarka upphæðar
Samsvörun fannst fyrir tengdan aðila
Samsvörun fannst fyrir skjalsnr./nr. ytra skjals
Eftirstöðvar með afslætti
Áreiðanleiki samsvörunar
Greiðsluafstemmingarbók
Greiðslujöfnunarreglur