Opnið gluggann Þjónustupöntun.

Sýnir nafn viðskiptamannsins, lýsingu þjónustupöntunar, stöðu, pöntunardagsetningar, pöntunartíma og samningsnúmer, ásamt þjónustuvörulínum og þjónustulínum. Hægt er að prenta annaðhvort allar þjónustupantanirnar eða valdar þjónustupantanir.

Hægt er að afmarka upplýsingarnar í skýrslunni með því að tengja afmarkanir við tiltekna reiti. Ef engar afmarkanir eru settar nær skýrslan til allra færslna.

Valkostir

Reitur Lýsing

Fjöldi afrita

Færið inn þann fjölda afrita af þjónustupöntuninni auk frumritsins sem á að prenta.

Sýna kerfisupplýsingar

Valið ef upplýsingar sem eru eingöngu til innri nota eiga að koma fram í prentuðu skýrslunni.

Upphæðir byggðar á

Þessi reitur er með tvo valkosti, Magn og Reikningsfært magn. Ef Magn er valið sýnir skýrslan línuupphæðina, upphæð með VSK og summu þessara tveggja samkvæmt mismuni á gildunum í reitunum Magn og Notað magn í þjónustulínu pöntunarinnar. Ef Reikningsfært magn er valið eru upphæðirnar sem eru birtar í skýrslunni byggðará gildinu í reitnum Reikningsfært magn í þjónustulínu pöntunarinnar.

Ábending

Sjá einnig