Opnið gluggann Verðmæti birgða - VÍV.
Birtir verðmætamat birgða fyrir tilteknar framleiðslupantanir í verðm.vinnu í gangi. Einnig birtast þar upplýsingar um virði notkunar, nýtingu afkastagetu og frálag í verðm.vinnu í gangi.
Prentaða skýrslan sýnir aðeins reikningsfærðar upphæðir, þ.e. verðgildi færslna sem hafa verið bókaðar sem reikningsfærðar.
Áður en þessi keyrsla er notuð er ætti að nota keyrsluna Leiðr. kostnað - Birgðafærslur. Það er gert til að uppfæra virðið sem sýnt er í skýrslunni verðmætamat vinnu í gangi.
Tilgreina má efni skýrslunnar með því að setja afmarkanir. Ef engar afmarkanir eru settar nær skýrslan til allra færslna.
Valkostir
Upphafsdagsetning: Tilgreina skal dagsetningu sem markar upphaf tímabilsins sem skýrslan nær yfir.
Lokadagsetning: Í þennan reit má færa inn dagsetningu sem markar lok tímabilsins sem skýrslan nær yfir ef reikna á virði vinnu í gangi á tilteknu tímabili.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með skýrslur eru í Skoða prófunarskýrslur fyrir bókun, Hvernig á að skoða og prenta skýrslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |