Opnið gluggann Leggja til söluverð á vinnublaði.
Stofnar tillögur um breytingar á söluverði á umsömdu einingarverði í töflunni Söluverð á grundvelli fyrirliggjandi verðs á birgðaspjöldunum. Að lokinni keyrslu má sjá niðurstöður hennar í glugganum Vinnublað söluverðs. Einnig er hægt að nota keyrsluna Leggja til vöruverð á vinnublaði til að gera tillögur að nýjum verðum.
Tvær leiðir eru við notkun þessarar keyrslu: Annaðhvort er söluverðið einfaldlega uppfært með leiðréttingarstuðli eða söluverðssamningur er afritaður yfir á annan viðskiptamann eða verðflokk.
Keyrslan gerir aðeins tillögur, hún framkvæmir ekki breytingarnar. Ef tillögurnar eru fullnægjandi og koma á þeim í framkvæmd þ.e. setja þær inn í töfluna Söluverð þá er hægt að nota keyrsluna Innleiða verðbreytingu. Keyrsluna má finna með því að smella á valmyndina Aðgerðir og vísa á Aðgerðir í glugganum Vinnublað söluverðs.
Til athugunar |
---|
Ef aðeins á að uppfæra verðsamningana sem eru byggðir á Leiðréttingarstuðull skal ekki fylla flipann út. |
Valkostir
Flýtiflipinn Valkostir er notaður til að ákveða hvernig jafna skuli söluverð og með hvaða skilyrðum.
Tegund sölu: Hér er hægt að færa inn tegund sölu fyrir söluverðssamninginn sem þangað á að afrita. Til að skoða sölugerðir sem til eru fyrir er smellt á reitinn.
Kóti sölu: Færður er inn kóti sölutegundarinnar sem söluverðið verður afritað í. Til að skoða sölukóða sem til eru fyrir er smellt á reitinn.
Mælieining: Hér er tilgreindur mælieiningarkóti sem verður notaður til að ákvarða nýtt verð. Hægt er að sjá fyrirliggjandi mælieiningarkóða með því smella á reitinn.
Gjaldmiðilskóti: Hér eru tilgreindir gjaldmiðlar sem nota á fyrir nýtt verð. Til að skoða gjaldmiðilskóða sem til eru fyrir er smellt á reitinn.
Upphafsdagsetning: Færð er inn dagsetningin þegar verðbreytingarnar taka gildi.
Lokadagsetning: Færð er inn dagsetningin þegar verðbreytingin fellur úr gildi.
Aðeins verð yfir: Hér má færa inn lægsta einingarverð sem verður breytt. Aðeins verði sem er hærra en það verður breytt. Ef verð er lægra eða jafnhátt þessari upphæð verður lína búin til fyrir það í glugganum Vinnublað söluverðs, en einingarverðið verður það sama og í töflunni Söluverð.
Leiðréttingarstuðull: Sá stuðull sem verðið í söluverðssamningnum er margfaldað með (til dæmis 1,2) er færður inn.
Sléttunaraðferð: Kóti fyrir sléttunaraðferð sem er notuð til að ákvarða nýtt verð er færður inn. Hægt er að sjá fyrirliggjandi sléttunaraðferðarkóða með því smella á reitinn.
Stofna nýtt verð: Setja skal gátmerki í reitinn ef gera á nýjar verðtillögur í keyrslunni (til dæmis nýja samsetningu af gjaldmiðli, sölukóta og tíma). Ekki er sett gátmerki ef aðeins á að leiðrétta fyrirliggjandi söluverð.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |