Þegar unnið er við þjónustuvöru í þjónustupöntunum getur þurft að skrá ferðakostnað vegna þjónustu sem tengist almennt þjónustupöntun. Eftirfarandi aðferð sýnir hvernig á að setja inn kostnað vegna ferða á þjónustusvæði viðskiptamanns í þjónustupöntun í glugganum Þjónustulínur.
Ekki er hægt að setja inn ferðakostnað fyrr en búið er að setja upp þjónustukostnað vegna ferða til tiltekinna þjónustusvæða. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að setja upp þjónustukostnað.
Ferðakostnaður vegna þjónustupöntunar settur inn:
Í reitnum Leita skal færa inn Þjónustupantanir og velja síðan viðkomandi tengi.
Opna skal viðeigandi þjónustupöntun.
Veljið þjónustulínu. Velja Aðgerðir, velja Röð og smella síðan á Þjónustulínur. Glugginn Þjónustulínur opnast.
Á flipanum Aðgerðir í flokknum Eiginleikar veljið Setja inn ferðakostnaður.
Þjónustulína er sett inn með ferðakostnaði að þjónustusvæði þar sem viðskiptamaðurinn í þjónustupöntuninni er staddur. Ferðakostnaðurinn á við þjónustupöntunina almennt.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |