Þegar unnið er við þjónustuvöru í þjónustupöntunum getur þurft að skrá upphafsgjald vegna þjónustu sem tengist tiltekinni þjónustuvöru. Eftirfarandi ferli sýnir hvernig á að skrá upphafsgjald í glugganum Þjónustuvörublað.
Áður en hægt er að setja inn upphafsgjald þarf að skilgreina hvaða þjónustukostnaður er upphafsgjald í reitnum Upphafsgjald þjónustupöntunar í glugganum Þjónustukerfisgrunnur.
Upphafsgjald vegna þjónustuvöru sett inn:
Í reitnum Leita skal færa inn Þjónustuverkhlutar og velja síðan viðkomandi tengi.
Valinn er línan sem inniheldur viðeigandi þjónustuvöru. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Þjónustuverkhlutar, skal velja hnappinn Þjónustuvörublað.
Á flýtiflipanum Línur skal velja viðeigandi línu og smella á Aðgerðir , velja Aðgerðir og síðan velja Setja inn upphafsgjald.
Kerfið setur inn þjónustulínu af gerðinni Kostnaður með upphafsgjaldinu. Upphafsgjaldið á við þá þjónustuvöru sem valin var.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |