Þegar samið hefur verið um verð sem viðskiptamaður á að greiða fyrir ákveðnar vörur er samkomulagið um vörurnar skráð í línurnar í glugganum Söluverð.

Söluverð stofnað fyrir viðskiptamann:

  1. Í reitinn Leita skal færa inn Viðskiptamenn og velja síðan viðkomandi tengi.

  2. Viðeigandi viðskiptamannaspjald er opnað. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Sala skal velja Verð. Glugginn Söluverð opnast.

  3. Í reitnum Tegund sölu stendur Viðskiptamaðurog í reitnum Kóti sölu er númer viðskiptamannsins.

  4. Í reitina í línunum skal færa vörunr., mælieiningu og umsamið einingarverð. Einnig er hægt að sýna dálkinn Afbrigðiskóti og tilgreina afbrigðiskótann ef mörg afbrigði eru af vörunni. Ef dálkurinn er ekki sýnilegur skal opna flýtivalmyndina fyrir dálkhausa og smella á Velja dálka til að bæta henni við.

  5. Ef viðskiptamaðurinn þarf að kaupa inn lágmarksmagn til að fá umsamið verð er reiturinn Lágmarksmagn fylltur út.

  6. Ef með þarf er færð inn upphafsdagsetning og lokadagsetning verðsamkomulagsins.

  7. Ef með þarf er hægt að tilgreina gjaldmiðilskótann og hvort línuafsláttur og reikningsafsláttur leyfist.

Skrefin eru endurtekin við hverja vöru sem söluverð er stofnað fyrir.

Til athugunar
Þegar verðsamkomulag er stofnað er hægt að tilgreina að VSK sé innifalinn í verði með því að setja kóta í reitinn VSK viðsk.bókunarfl. (verð) og velja reitinn Verðið er með VSK .

Ábending

Sjá einnig