Ef settur hefur verið upp mikill fjöldi sölupantana, reikninga eða kreditreikninga er kostur að bóka þær með keyrslu í forritinu. Hægt er að bóka þær að nóttu til eða á öðrum hentugum tíma.

Fjöldabókanir reikninga og kreditreikninga virkar á sama hátt og fyrir sölupantanir.

Fjöldabókun sölupantana

  1. Í reitnum Leita skal færa inn Sölupantanir og velja síðan viðkomandi tengi.

  2. Á flipanum Heim, í flokknum Vinna, skal velja Fjöldabóka. Keyrslubeiðnaglugginn opnast.

  3. Tilgreina þarf skilyrði fyrir keyrsluna.

  4. Á flýtiflipanum Sölupöntun er hægt að stilla afmörkun til að velja ákveðin pöntunarnúmer eða röð af pöntunarnúmerum fyrir keyrsluna.

  5. Velja hnappinn Í lagi.

    Þegar keyrslunni er lokið birtast skilaboð um hversu margar pantanir hafa verið bókaðar. Ef einhverjar pantanir hafa ekki verið bókaðar er það vegna villna eða ónógra upplýsinga um pantanirnar. Þá verður að athuga hvers vegna þær hafa ekki bókast. Hægt er að gera þetta með því að keyra prófunarskýrsluna.

Mikilvægt
Ef fjöldabókunin hefur að geyma bæði pantanir til móttöku og pantanir til reikningsfærslu þarf að ganga úr skugga um að reitirnir Magn til afhendingar og Magn til reikningsf. á pöntununum hafi rétt magn t.d. 0 áður en bókað er. Í keyrslubeðnisglugganum veljið Afhenda og Reikningur gátreiti.

Ef til dæmis átta einingar hafa verið sendar af 25 eininga pöntun, eru átta einingarnar reikningsfærðar og 12 einingar til viðbótar verða sendar.

Ábending

Sjá einnig