Opnið gluggann Fjöldabóka sölukreditreikninga.
Bókar marga sölukreditreikninga í einu. Hún getur verið gagnleg ef þarf að bóka marga kreditreikninga. Hægt er að velja þá kreditreikninga sem á að bóka með því að fylla í reitinn Nr.
Til athugunar |
---|
Brýnt er að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar á kreditreikningana áður en þeir eru fjöldabókaðir. Annars er ekki víst að þær bókist. Þegar fjöldabókun er lokið birtast skilaboð um hve margir sölukreditreikninganna voru bókaðir (til dæmis 9 af 10). |
Valkostir
Bókunardags.: Hér er skráð dagsetningin sem kerfið notar sem dagsetningu fylgiskjals og/eða bókunar þegar bókað er ef annar hvor eða báðir eftirfarandi reitir eru merktir með gátmerki.
Ef engin bókunardagsetning eða fylgiskjalsdagsetning er á fylgiskjali er dagsetningin í þessum reit notuð jafnvel þótt ekkert gátmerki sé í viðeigandi reit.
Endursetja bókunardags.: Í þennan reit má setja gátmerki ef hann á að koma í stað bókunardagsetningar kreditreikningsins sem dagsetning var færð inn í reitnum Bókun/Dags. skjals.
Endursetja dagsetningu fylgiskjals: Í þennan reit má setja gátmerki ef hann á að koma í stað skjalsdagsetningar kreditreikningsins sem dagsetning var færð inn í reitnum Bókun/Dags. skjals.
Reikna reikn.afsl.: Gátmerki er sett í þennan reit ef reikningsafsláttur á að reiknast sjálfkrafa á sölukreditreikningi áður en bókað er.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |