Opnið gluggann Fjöldabóka sölureikninga.

Bókar marga sölureikninga í einu. Þetta getur verið gagnlegt ef þarf að bóka marga sölureikninga. Áður en keyrslan er sett í gang þarf að velja þá reikninga sem eiga að bókast.

Mikilvægt
Brýnt er að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar á sölureikningana áður en þeir eru fjöldabókaðir. Annars er ekki víst að þær bókist. Þegar fjöldabókun er lokið birtast skilaboð um hve margir sölureikningar voru bókaðir (til dæmis 9 af 10).

Hægt er að skilgreina hvaða reikninga á að fjöldabóka með því að setja afmörkun á reikningsnúmerið. Einnig er hægt að ákvarða hvernig unnið er úr keyrslunni með því að fylla út reitina á flýtiflipanum Valkostir. Reitirnir eru fylltir út sem hér segir:

Valkostir

Bókunardags.: Hér er skráð dagsetningin sem kerfið notar sem dagsetningu fylgiskjals og/eða bókunar þegar bókað er ef annar hvor eða báðir eftirfarandi reitir eru merktir með gátmerki.

Ef engin bókunardagsetning eða fylgiskjalsdagsetning er á fylgiskjali er dagsetningin í þessum reit notuð jafnvel þótt ekkert gátmerki sé í viðeigandi reit.

Endursetja bókunardags.: Gátmerki er sett í reitinn ef á að endursetja bókunardagsetningu sölureikninga með dagsetningunni í reitnum hér að ofan.

Endursetja dagsetningu fylgiskjals: Gátmerki er sett í reitinn ef á að endursetja fylgiskjalsdagsetningu sölureikninganna með dagsetningunni í reitnum Bókunardags.

Reikna reikn.afsl.: Gátmerki er sett í þennan reit ef reikningsafsláttur á að reiknast sjálfkrafa á sölureikninga áður en bókað er.

Ábending