Þegar búið er að stofna þjónustupantanir eða þjónustutilboð má nota forða til ráðstöfunar til að úthluta forða, til dæmis tæknimönnum, til að framkvæma þjónustuverkhlutana í pöntununum eða tilboðunum.

Forða úthlutað út frá forða til ráðstöfunar

  1. Í reitnum Leita skal færa inn Afgreiðslustöð og velja síðan viðkomandi tengi.

  2. Flett er upp viðkomandi þjónustupöntun.

  3. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Áætlun, skal velja Úthlutun forða.

  4. Velja skal færslu með þjónustuverkinu sem úthluta á forða til.

  5. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Áætlun, skal velja Forði til ráðstöfunar.

  6. Í glugganum Forði til ráðstöfunar (þjónusta) á flipanum Aðgerðir í flokknum Almennt veljið Sýna fylki.

  7. Forðinn sem á að úthluta er valinn. Hægt er að byggja valið á því hvort forðinn sé hæfur í verkhlutann, hvort hann sé staðsettur á svæði viðskiptamanns og/eða hvort viðskiptamaðurinn vill hann helst.

  8. Valin er dagsetning þegar forðinn er með nægar vinnustundir til ráðstöfunar til verksins og sem er nálægt svardegi þjónustupöntunar.

  9. Í reitinn Magn til úthlutunar er færður inn stundafjöldinn sem á að úthluta forðanum til þjónustuverksins.

  10. Í flipanum Aðgerðir í flokknum Eiginleikar veljið Úthlutun til að úthluta völdum forða á valinni dagsetningu.

    Reiturinn Staða er sjálfkrafa stillt á Virkt.

Skrefin eru endurtekin fyrir hverja dagsetningu sem á að úthluta forða til þjónustuverks.

Til athugunar
Virkar þjónustupöntunarúthlutunarfærslur geta aðeins verið með úthlutunina Virkt með einum forða eða forðaflokki í einu fyrir þjónustuvöru í þjónustupöntun.

Ábending

Sjá einnig