Þegar forða (til dæmis tæknimanni)er úthlutað til þjónustuverkhluta sem á að framkvæma hjá viðskiptamanni er hægt að velja forða sem staðsettur er á sama þjónustusvæði og viðskiptamaðurinn. Þess vegna er nauðsynlegt að vita til hvaða þjónustusvæða forðum er úthlutað.
Stillingar um notkun þjónustusvæða eru gerðar í reitnum Þjónustusvæði - Valkostir í glugganum Þjónustukerfisgrunnur.
Forða úthlutað til þjónustusvæða:
Í reitnum Leit skal færa inn Þjónustusvæði forða og velja síðan viðkomandi tengil.
Stofnið nýja úthlutun þjónustusvæðis forða.
Í reitnum Forðanr. skal velja forðann sem úthluta á til þjónustusvæðis.
Í reitnum Kóti þjónustusvæðis skal velja þjónustusvæðið sem úthluta á forðanum til.
Í reitinn Upphafsdags. má færa inn dagsetninguna þegar forðinn kemur á þjónustusvæðið.
Endurtaka skal þesse þrep fyrir hverja úthlutun sem á að skrá.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |