Ef milli-fyrirtækjafélagar vilja skiptast á færslum með víddum þarf að nota milli-fyrirtækjavíddir.
Félagarnir þurfa að koma sér saman um víddirnar sem allir nota þegar færslur milli fyrirtækja eru stofnaðar. Dæmi: móðurfyrirtæki hópsins stofnar einfaldaða útgáfu af víddum sínum, flytur milli-fyrirtækjavíddir í XML-skrá og dreifir henni til einstakra fyrirtækja í hópnum.
Hvert dótturfyrirtæki flytur síðan XML-skrána inni í töfluna MF-vídd og varpar milli-fyrirtækjavíddum á víddirnar í eigin víddatöflu.
Móðurfyrirtæki
Ef fyrirtækið skilgreinir safn vídda milli fyrirtækja sem hópurinn notar sem sameiginlega viðmiðun, er þessari aðferð fylgt: Hvernig á að skilgreina millifyrirtækjavíddir.
Dótturfyrirtæki
Ef fyrirtækið hefur fengið XML-skrá með MF-víddum sem hópurinn notar sem sameiginlega viðmiðun er þessari aðferð fylgt: Millifyrirtækjavíddir fluttar inn: Hvernig á að flytja inn millifyrirtækjavíddir.
Öll fyrirtæki
Þegar víddir milli fyrirtækja hafa verið skilgreindar eða fluttar inn þarf að tengja hverja MF-vídd við eina af víddum fyrirtækisins og öfugt. Í glugganum MF-víddir er skilgreint hvernig MF-víddir í færslum á innleið verða túlkaðar sem víddir í víddatöflu fyrirtækisins. Í glugganum Víddir er tilgreint hvernig víddirnar verða túlkaðar sem MF-víddir í færslum á útleið. Fylgjið þessari aðferð: Hvernig á að varpa MF-víddum á víddir fyrirtækisins.