Ákvarðar fjölda aukastafa sem forritið birtir (til dæmis á reikningum og í skýrslum) vegna upphæða í SGM. Sjálfgefin stilling, 2:2, tilgreinir að upphæðir í SGM verði sýndar með tveimur aukastöfum.
Í þessum reit má tilgreina fjölda aukastafa sem:
-
fasta tölu.
-
lágmarks- og hámarksfjölda (aðgreinda með tvípunkti).
Eftirfarandi tafla sýnir hvernig kerfið notar efni reitsins Aukastafir í upphæð til að sýna upphæðirnar 768,963243 SGM og 125 SGM:
Efni reitsins Fjöldi aukastafa í upphæð | UpphæðSýnt í kerfinu |
---|---|
2 | 768,96 |
2:2 | 768,96 |
2:4 | 768,9632 |
0 | 769 |
0:5 | 768,96324 |
Í þessari töflu gefur 2:4 til kynna að lágmark tveir tugastafir og hámark fjórir tugastafir séu sýndir fyrir upphæðir í SGM.
Þessi reitur ákvarðar aðeins hvernig kerfið sýnir upphæðir í SGM. Reiturinn Aukastafir í upphæð í glugganum Gjaldmiðlar ákvarðar hvernig kerfið sýnir upphæðir í erlendum gjaldmiðlum.
Hægt er að tilgreina reglur til að slétta reikningsupphæðir í reitnum Reikningssléttunarnákvæmni (SGM) og hvernig kerfið sýnir upphæðir í SGM í reitnum Aukastafir í ein.upphæð.
Til athugunar |
---|
Þessi reitur ákvaðar fjölda aukastafa sem nota á til að birta upphæðir í SGM fyrir öll viðskipti sem búin eru til í Microsoft Dynamics NAV, hvort sem þau eru í færslubók, sölu, innkaupum o.s.frv. Þetta er gert til að koma í veg fyrir ósamræmi á milli upphæða. |
Þessi aðgerð verður gerð virk næst þegar notandinn skráir sig inn í Microsoft Dynamics NAV.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |