Tilgreinir hversu marga aukastafi kerfið sýnir (til dæmis á reikningum og skýrslum) í upphæðum í viðkomandi gjaldmiðil. Sjálfgefna stillingin 2:2 þýðir að upphæðir í erlendum gjaldmiðlum eru sýndar með tveimur aukastöfum.

Í þessum reit má tilgreina fjölda aukastafa sem:

Eftirfarandi tafla sýnir hvernig kerfið notar efni reitsins Aukastafir í upphæð til að sýna upphæðirnar 768,963243 og 125 í tilteknum gjaldmiðlum:

Efni reitsins Fjöldi aukastafa í upphæðUpphæðir eins og þær birtast

2

768,96

125,00

2:4

768,9632

125,00

0

769

125

0:5

768,96324

125

Í þessari töflu gefur 2:4 til kynna að minnst tveir tugastafir og mest fjórir séu sýndir fyrir upphæðir í DKK. Kerfið sýnir upphæðir heilar (með engum aukastöfum) (ITL).

Þessi reitur ákvarðar aðeins hvernig kerfið sýnir upphæðir í þessum gjaldmiðli. Hægt er að tilgreina reglur um sléttun upphæða í erlendum gjaldmiðli í töflunni Upph. sléttunarnákvæmni.

Til athugunar
Þessi reitur ákvaðar fjölda aukastafa til að birta upphæðir í þessum gjaldmiðli fyrir öll viðskipti í Microsoft Dynamics NAV, hvort sem þau eru í færslubók, sölu, innkaupum o.s.frv. Þetta er gert til að koma í veg fyrir ósamræmi á milli upphæða.

Þessi aðgerð verður gerð virk næst þegar notandinn skráir sig inn í Microsoft Dynamics NAV.

Ábending

Sjá einnig

Tilvísun

Gjaldmiðlar