Tilgreinir stærð bilsins sem nota á við sléttun upphæða í SGM. Einnig er hægt að tilgreina reikningssléttun fyrir hvern gjaldmiðil í töflunni Gjaldmiðill.
Dæmi:
-
1.00 Sléttun að heilum tölum (engir aukastafir - deilanlegt með 1.00)
-
0.05 Sléttun að tölu deilanlegri með 0.05
-
0.01 Engin sléttun (venjulegir aukastafir gjaldmiðils)
Þegar reikningsupphæð er sléttuð býr kerfið til reikningslínu með sléttuðu upphæðinni. Skoða má sléttuðu reikningsupphæðina fyrir bókun í glugganum Söluupplýsingar eða í glugganum Innkaupaupplýsingar.
Ef á að tilgreina reikningssléttun fyrir erlendan gjaldmiðil þarf að fylla reitina út eins og hér segir:
Sléttunarnákvæmni reikninga | Tilgreinir stærð bilsins sem nota á við sléttun reikningsupphæða. |
Tilgreinir hvernig slétta á upphæðina, til dæmis upp eða niður. | |
Sléttun reiknings í glugganum fyrir Sölugrunn eða glugganum fyrir Innkaupagrunn. | Tilgreinir hvort kerfið á að nota reikningssléttun, eins og hún hefur verið skilgreind í reitunum tveimur hér fyrir ofan, á sölureikninga og innkaupareikninga. |
Reikningur reikningssléttunar í gluggunum Bókunarflokkur lánardrottna eða Bókunarflokkur viðskiptamanna. | Tilgreinir fjárhagsreikningsnúmerið sem upphæðin sem myndast við reikningssléttun verður bókuð á. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |