Tilgreinir fylgiskjalsnúmer fyrir færslubókarlínu.

Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð á færslubókarlínunni inniheldur númeraraðarkóta, verður hann notaður til að úthluta bókunarfærslunni fylgiskjalsnúmer. Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð er auður verður innihald reitsins notað sem fylgiskjalsnúmer bókuðu færslunnar.

Ef reiturinn Númeraröð á bókarkeyrslunni er fylltur út, setur forritið sjálfkrafa næsta númer í númeraröðinni í reitinn. Ef kerfið úthlutar fylgiskjalinu ekki sjálfkrafa fylgiskjalsnúmeri þarf notandinn að endurskilgreina viðkomandi númeraröð.

Hægt er að tilgreina fylgiskjalsnúmer handvirkt ef reiturinn Númeraröð í bókarkeyrslunni er auður.

Ef færslubókin er ítrekunarbók og reiturinn Bókunarnúmeraröð í línunni er auður er hægt að færa inn reiknireglu hér sem verður notuð til að búa til fylgiskjalsnúmer fyrir hverja bókaða færslu. Fylgiskjalsnúmerið verður sjálfkrafa uppfært í hvert sinn sem bókað er í færslubókina. (Einnig er hægt að velja að færa inn fastan texta sem er notaður í hvert sinn sem færslubókin er uppfærð.)

Hægt er að setja upp reiknireglu fyrir fylgiskjalsnúmer með einum af eftirfarandi kótum:

KótiNiðurstaða:

%1

Líðandi dagur (til dæmis mánudagur)

%2

Líðandi vika (til dæmis 52)

%3

Númer líðandi mánaðar (til dæmis 1)

%4

Heiti líðandi mánaðar (til dæmis janúar)

%5

Heiti líðandi bókhaldstímabils (til dæmis janúar)

Dæmi:

Ef númer fylgiskjals færslunnar á að vera "L (leiga) + líðandi mánuður" er ritað "L%3" í reitinn. Númer fylgiskjalsins í janúar verður þá L1.

Ef fleiri línur en ein eru í færslubókinni heldur kerfið sjálfkrafa sama númeri á næstu línum þar til staða bókarinnar er 0. Næsta númer í röðinni verður svo fært í línuna þar á eftir.

Til athugunar
hægt er að breyta reitnum Númer fylgiskjals handvirkt þannig að hægt sé að tilgreina mismunandi númer fylgiskjala fyrir mismunandi færslubókarlínur eða sama númer fylgiskjals fyrir nokkrar færslubókarlínur.

Ef Númeraröð reiturinn á bókarkeyrslunni er hins vegar fylltur út krefst bókunargerðin í færslubókunum þess að númer fylgiskjala á stakri eða nokkrum færslubókarlínum séu í réttri röð. Til að ganga úr skugga um að þú fáir ekki bókunarvillur vegna fylgiskjalsnúmers pöntunar, geturðu notað aðgerðina Endurraða númerum fylgiskjals áður en þú bókar færslubókina. Frekari upplýsingar eru í Hvernig á að: Endurraða númerum fylgiskjals í færslubókum.

Ábending

Sjá einnig