Sýnir þá tegund VSK-útreiknings sem notuð er þegar þessi færsla er bókuð.
Kerfið færir sjálfkrafa í reitinn með því að nota töfluna VSK-bókunargrunnur.
Til að sjá tiltæka valmöguleika skal velja reitinn.
Valkostur | Lýsing |
---|---|
Venjul. VSK | Þegar þessi kostur er valinn reiknar kerfið VSK fyrir vörurnar í þessari línu og stofnar VSK-færslu með upphæðinni. |
Bakfærður VSK | Þessi valkostur er notaður vegna viðskipta við lönd/svæði innan ESB þegar kaupandinn verður að reikna út VSK og standa skil á honum við skattyfirvöld. Einnig þarf að muna að fylla út í reitinn Reikningur bakfærðs VSK. Þessi valkostur hefur ekki áhrif á ársreikninga fyrirtækisins. Við sölu á vörum með bakfærðum VSK er VSK hvorki reiknaður né frádreginn. Við kaup á vörum reiknar kerfið upphæð VSK og debetfærir á innkaupareikning VSK og kreditfærir á reikning bakfærðs VSK. |
Eingöngu VSK | Þessi valkostur er notaður þegar öll upphæðin sem á að bóka er VSK. Þessi kostur kann til dæmis að henta þegar leiðréttingarfærsla er gerð til leiðréttingar á villu í VSK-útreikningi. |
Söluskattur | Þessi valkostur er notaður ef kerfið þarf að reikna bandarískan söluskatt í stað VSK. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |