Inniheldur fylgiskjalsnúmer færslunnar.
Hægt er að færa í reitinn í eftirfarandi reitum:
-
Ef færslan var bókuð úr bókarlínu úthlutar kerfið færslunni sjálfkrafa númeri úr númeraröðinni í reitnum Bókunarnúmeraröð í línunni. Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð er auður er númer skjalsins afritað úr reitnum Númer fylgiskjals í færslubókarlínunni.
-
Ef færslan var bókuð í pöntun, á reikningi eða kreditreikningi, úthlutaði kerfið færslunni sjálfkrafa númeri úr númeraröðinni í reitnum Bókunarnúmeraröð í innkaupahausnum. Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð er auður var númerið afritað úr reitnum Nr. í innkaupahausnum.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |