Tilgreinir fylgiskjalsnúmer fyrir færslubókarlínu.
Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð á færslubókarlínunni inniheldur númeraraðarkóta, verður hann notaður til að úthluta bókunarfærslunni fylgiskjalsnúmer. Ef reiturinn Bókunarnúmeraröð er auður verða númerin í þessum reit notuð sem fylgiskjalsnúmer bókuðu færslunnar.
Ef reiturinn Númeraröð á bókarkeyrslunni er fylltur út, setur forritið sjálfkrafa næsta númer í númeraröðinni í reitinn.
Hægt er að tilgreina fylgiskjalsnúmer handvirkt ef reiturinn Númeraröð í bókarkeyrslunni er auður.
Ef um er að ræða ítrekunarbók og reiturinn Bókunarnúmeraröð í línunni er auður er hægt að færa inn reiknireglu hér sem verður notuð til að búa til fylgiskjalsnúmer fyrir hverja bókaða færslu. Fylgiskjalsnúmerið verður sjálfkrafa uppfært í hvert sinn sem bókað er í færslubókina. (Einnig er hægt að velja að færa inn fastan texta sem er notaður í hvert sinn sem færslubókin er uppfærð.)
Hægt er að setja upp reiknireglu fyrir fylgiskjalsnúmer með einum af eftirfarandi kótum:
Kóti | Niðurstaða: |
---|---|
%1 | Líðandi dagur (til dæmis mánudagur) |
%2 | Líðandi vika (til dæmis 52) |
%3 | Númer líðandi mánaðar (til dæmis 1) |
%4 | Heiti líðandi mánaðar (til dæmis janúar) |
%5 | Heiti líðandi bókhaldstímabils (til dæmis janúar) |
Dæmi
Ef númer fylgiskjals færslunnar á að vera "V (viðhald) + líðandi mánuður" er ritað "V%3" í reitinn. Númer fylgiskjalsins í janúar verður þá V1.
Ef línur í bókinni eru fleiri en ein notar kerfið sjálfkrafa sama númer í þeim línum sem á eftir koma.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |