Opnið gluggann Víddir - Sundurliðun.
Birtir ítarlega flokkun á notkun vídda í færslum á tilteknu tímabili. Færslurnar í skýrslunni eru tengdar tilteknu greiningaryfirliti. Þess vegna eru eingöngu færslur úr víddum eða víddasamsetningum sem teknar eru með í völdu greiningaryfirliti teknar með í skýrslunni. Hægt er að nota skýrsluna til að rannsaka hvaða aðgerðir nota hvaða víddir og hvernig einstakar víddir eru sameinaðar öðrum víddum í einstökum færslum. Til að fá einfaldari greiningu á víddum skal nota Víddir - Heild skýrsluna.
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Kóti greiningaryfirlits | Færa skal inn kóta greiningaryfirlitsins sem á að byggja skýrsluna á. Til að velja úr þeim greiningaryfirlitskóðum sem hafa verið settir upp í töflunni Greiningaryfirlit skal velja reitinn. |
Taka víddir með | Færið inn víddirnar sem eiga að vera í skýrslunni. Aðeins er hægt að velja víddir sem eru í greiningaryfirlitinu sem valið var í reitnum Kóti greiningaryfirlits. Skoða má víddirnar sem eru tiltækar með því að velja reitinn. |
Dags.afmörkun | Setja afmörkun til að flokka færslur eftir dagsetningu. Tilgreina má ákveðna dagsetningu eða tímabil. |
Prenta auðar línur | Valið ef skýrslan á ekki að innihalda víddir og víddargildi sem hafa núllstöðu. |
Sýna upph. í öðrum skýrslugjaldmiðli | Valið ef birta á skýrsluupphæðir í öðrum skýrslugjaldmiðli. |
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með skýrslur eru í Skoða prófunarskýrslur fyrir bókun, Hvernig á að skoða og prenta skýrslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |