Opnið gluggann Sölugreining eftir víddum.

Sýnir upphæðir sem fengnar eru úr greiningaryfirlitum sem hafa verið sett upp. Hægt er að greina aðgerðir með því að nota víddaupplýsingar. Tiltækar víddir í glugganum innihalda einnig dagsetningu og vörunúmer.

Reitirnir eru fylltir út í glugganum Sölugreining eftir víddum til að tilgreina hvað birtist í fylkisglugganum. Með því að velja víddir á hverjum ás í fylkisglugganum er hægt að greina færslur frá ýmsum sjónarhornum. Einnig er hægt að afmarka færslur í glugganum til að búa til mjög greinargóða mynd af starfsemi fyrirtækisins. Smellt er á Sýna fylki til að skoða glugga fylkisins.

Í dálkunum í fylkinu eru einnig eftirfarandi upplýsingar:

Kóti

Í þessum reit er kóti víddargildis.

Heiti

Í þessum reit er heiti víddargildis.

Heildarupphæð

Í þessum dálki er heildarupphæð fyrir þá tegund upphæða sem var valin á flýtiflipanum Valkostir í reitnum Sýna.

Fylki

Í hverjum dálki hægra megin eru upphæðir sem byggðar eru á greiningaryfirlitinu. Hægt er að velja Hreyfing eða Staða til dags. í reitnum Skoða sem til þess að fá þessar upphæðir fram á mismunandi hátt. Tímabilin eru valin í reitnum Skoða sem.

Ábending

Sjá einnig